Ungmennahús - Áfangaskýrsla
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
35. (2136). fundur
Áfangaskýrsla íþrótta- og tómstundaráðs og ungmennaráðs Garðabæjar um hugmyndavinnu og þarfagreiningu varðandi aðstöðu fyrir félags- og tómstundastarf ungs fólks í bænum, lögð fram.
Bæjarráð tekur undir þau sjónarmið sem fram koma í skýrslunni að stofnun ungmennahúss sé liður í að styrkja og efla forvarnir í bænum með fjölbreyttri og heilbrigðri félagslegri starfsemi fyrir ungmenni bæjarins. Fræðslu- og menningarsvið skal vinna að nánari útfærslu tillögunnar í samráði við forsvarsmenn félagsmiðstöðva í Garðabæ.
Bæjarráð vísar málinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2025.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
02
31. fundur
Formaður ÍTG og formaður Ungmennaráðs hafa unnið að áfangaskýrslu um ungmennahús í Garðabæ, þarfagreiningu og hugmyndavinnu varðandi aðstöðu fyrir félags- og tómstundastarf ungs fólks í Garðabæ. Með skýrslunni er lögð fram sú tillaga að lagt verði út frá því við gerð fjárhagsáætlunar 2025 að ungmennahús verði stofnað í Garðabæ árið 2025 og opið verði hluta úr viku fyrst um sinn. Fræðslu- og menningarsviði verði falið að vinna að nánari útfærslu að skipulagi ungmennahússins í samráði við ungmennaráð og íþrótta- og tómstundaráð og hafi þá áfangaskýrsluna til hliðsjónar. Íþrótta- og tómstundaráð samþykkti áfangaskýrsluna og tillöguna fyrir sitt leyti og fagnar þessu máli og hvetur til þess að því verði fylgt eftir.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
03
30. fundur
Formaður ÍTG gerir grein fyrir stöðu málsins.
Á sameiginlegum fundi bæjarstjórnar Garðabæjar og ungmennaráðs 21. mars 2024 var svohljóðandi tillaga samþykkt:
Ungmennaráð og bæjarstjórn Garðabæjar eru sammála um að fara í hugmyndavinnu og þarfagreiningu varðandi aðstöðu fyrir félags- og tómstundastarf ungs fólks í bænum. Verði meðal annars byggt á fyrri vinnu íþrótta- og tómstundaráðs um sama mál. Fulltrúar úr íþrótta- og tómstundaráði og ungmennaráði skulu vinna að málinu í sameiningu og leggi fram áfangaskýrslu fyrir lok september 2024.
Vinnan heldur áfram og er komin vel á veg. Stefnan að áfangaskýrslan verði lögð fyrir fund ÍTG og ungmennaráðs í september og skilað til bæjarráðs.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
04
29. fundur
Áframhaldandi umræða
Formaður ÍTG upplýsti ráðið um samstarf hans og ungmennaráðs. Formaður fór á fund ungmennaráðs 28. maí sl. og ræddi verkefnið við nefndarmenn. Í kjölfarið svaraði ungmennaráð spurningum sem ÍTG hafði undirbúið fyrir fundinn. Farið var yfir svör ungmennaráðs á fundinum og gagnlegar umræður fóru fram. Formanni ÍTG og íþrótta-, tómstunda- og forvarnarfulltrúa falið að halda vinnunni áfram og vinna að áfangaskýrslu í samstarfi við ungmennaráð.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
05
27. fundur
Tillaga samþykkt á fundi ungmennaráðs með bæjarstjórn 21. mars 2024.
"Ungmennaráð og bæjarstjórn Garðabæjar eru sammála um að fara í hugmyndavinnu og þarfagreiningu varðandi aðstöðu fyrir félags- og tómstundastarf ungs fólks í bænum. Verði meðal annars byggt á fyrri vinnu íþrótta- og tómstundaráðs um sama mál. Fulltrúar úr íþrótta- og tómstundaráði og ungmennaráði skulu vinna að málinu í sameiningu og leggi fram áfangaskýrslu fyrir lok september 2024."
Umræður fóru fram um bókun bæjarstjórnar og ungmennaráðs Garðabæjar frá sameiginlegum fundi þeirra 21. mars sl. Íþrótta-, tómstunda- og forvarnafulltrúa var falið að draga saman gögn úr fyrri vinnu um hugmyndir að Ungmennahúsi. Formanni ÍTG var falið að fylgja verkefninu áfram og hefja samvinnu við ungmennaráð.