27. fundur
27. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
10.04.2024
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - formaður
- Harpa Rós Gísladóttir - aðalmaður
- Laufey Jóhannsdóttir - aðalmaður
- Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi
- Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Kári Jónsson
Dagskrá
Málsnúmer 2404116
01
Íþróttaþing Garðabæjar
Til umræðu er hugmynd um að ÍTG boði til íþróttaþings í Garðabæ í byrjun maí 2024 til að ræða helstu mál á þeim vettvangi.
Rætt var um að ÍTG boði til íþrótta- og tómstundaþings í Garðabæ til að ræða helstu mál á þeim vettvangi. Umræður fóru fram um umræðuefni og fyrirkomulag. Stefnt verður að því að halda þingið næsta haust.
Málsnúmer 2404120
02
Þarfagreining varðandi aðstöðu fyrir félags- og tómstundastarf ungs fólks í Garðabæ
Tillaga samþykkt á fundi ungmennaráðs með bæjarstjórn 21. mars 2024.
"Ungmennaráð og bæjarstjórn Garðabæjar eru sammála um að fara í hugmyndavinnu og þarfagreiningu varðandi aðstöðu fyrir félags- og tómstundastarf ungs fólks í bænum. Verði meðal annars byggt á fyrri vinnu íþrótta- og tómstundaráðs um sama mál. Fulltrúar úr íþrótta- og tómstundaráði og ungmennaráði skulu vinna að málinu í sameiningu og leggi fram áfangaskýrslu fyrir lok september 2024."
Umræður fóru fram um bókun bæjarstjórnar og ungmennaráðs Garðabæjar frá sameiginlegum fundi þeirra 21. mars sl. Íþrótta-, tómstunda- og forvarnafulltrúa var falið að draga saman gögn úr fyrri vinnu um hugmyndir að Ungmennahúsi. Formanni ÍTG var falið að fylgja verkefninu áfram og hefja samvinnu við ungmennaráð.
Málsnúmer 2404011
03
Stjörnuhlaup 2024
Sótt hefur verið um að halda Stjörnuhlaupið í landi Garðabæjar 18.maí nk.
Til umræðu er áframhaldanddi samstarfssamningur við hlaupahóp Stjörnunnar.
ÍTG tók fyrir drög að framlengingu samnings við hlaupahóp Stjörnunnar um stuðning við Stjörnuhlaupið.
ÍTG leggur til við bæjarráð að gera samning til næstu þriggja ára, 2024-2026, með fastri árlegri upphæð, kr. 1.000.000,-"
Málsnúmer 2404035
04
Þór Þórhallsson - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur kr. 20.000 til Þórs Þórhallssonar vegna Granada 2024 WSPS World Championships í skotfimi fatlaðra á vegum ÍF 30. maí til 7. júní 2024.
ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Þórs Þórhallssonar vegna Granada 2024 WSPS World Championships í skotfimi fatlaðra á vegum ÍF 30. maí til 7. júní 2024.
Málsnúmer 2404022
05
Snæfríður Sól Ingvarsdóttir - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur kr. 20.000 til Snæfríðar Sólar Ingvadóttur vegna Dance world cup 2024 30. júní í prag, Tékklandi
ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Snæfríðar Sólar Ingvadóttur vegna Dance world cup 2024 30. júní í Prag, Tékklandi.
a) Íþrótta-, forvarna- og tómstundafulltrúi upplýsti nefndina um vinnu sem hefur átt sér stað varðandi sumarfrístund í Garðabæ árið 2024. Hann hefur haft samband við íþrótta- og tómstundafélög í bænum og óskað eftir upplýsingum um framboð á sumarnámskeiðum. Flest félög hafa svarað en enn er beðið eftir upplýsingum frá nokkrum. Starfsfólk Garðabæjar vinnur að því að kortleggja framboð á sumarfrístundastarfi í bænum sumarið 2024 með það fyrir augum að tryggja að þjónusturof verði ekki og að eitthvað sé í boði fyrir börn á aldrinum 6-12 ára í hverri viku í sumarfríi grunnskólanna.
b) næsti fundur ÍTG verður 8. maí og síðasti fundur vetrarins er færður fram um viku til 5. júní.