Beiðni um fjárstuðning Garðabæjar við Stjörnuhlaup 2024.
Málsnúmer 2404011
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
14. (2115). fundur
Drög að samstarfssamningi lögð fram. Bæjarráð staðfestir afgreiðslu íþrótta- og tómstundaráðs um að gera samstarfssamning við Stjörnuna um Stjörnuhlaupið. Samningurinn er til næstu þriggja ára, 2024-2026, með fastri árlegri upphæð, kr. 1.000.000.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
02
27. fundur
Sótt hefur verið um að halda Stjörnuhlaupið í landi Garðabæjar 18.maí nk.
Til umræðu er áframhaldanddi samstarfssamningur við hlaupahóp Stjörnunnar.
ÍTG tók fyrir drög að framlengingu samnings við hlaupahóp Stjörnunnar um stuðning við Stjörnuhlaupið.
ÍTG leggur til við bæjarráð að gera samning til næstu þriggja ára, 2024-2026, með fastri árlegri upphæð, kr. 1.000.000,-"