Beint í efni

31. fundur

18.09.2024
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

31. fundur

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi

18.09.2024

Kl. 08:00 - 09:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - formaður
  • Harpa Rós Gísladóttir - aðalmaður
  • Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Hlynur Elías Bæringsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi
  • Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskipta- og kynningarfulltrúi

Ritari

  • Kári Jónsson

Dagskrá

Málsnúmer 2408580

01

Vopnaburður barna og ungmenna

Bréf til foreldra um vopnaburð barna og unglinga.

Linda Udengård sviðsstjóri fræðslu og menningarsviðs kynnti bréf sem send voru út í byrjun september á nokkrum tungumálum til foreldra um vopnaburð barna og unglinga.

Málsnúmer 2409265

02

Forvarnavika Garðabæjar 2024

Forvarnavika Garðabæjar verður haldinn 1.til 8. nóvember 2024.

Menntadagur Garðabæjar er 1. nóvember og dagur gegn einelti er 8. nóvember.

Þema forvarnavikunnar er Samskipti - S-in 5: "samkennd - seigla - sjálfsstjórn - sjálfstæði - skapandi hugsun".

Forvarnardagur forseta Íslands er 2. október í grunn- og framhaldsskólum landsins, sérstaklega í 9. bekk og fyrsta ári í framhaldsskóla.

Forvarnavika Garðabæjar verður haldinn 1. til 8. nóvember 2024.

Menntadagur Garðabæjar er 1. nóvember og dagur gegn einelti er 8. nóvember.

Þema forvarnavikunnar nú er Samskipti - S-in 5: "samkennd - seigla - sjálfsstjórn - sjálfstæði - skapandi hugsun". Áhersla er á að ná til barna, foreldra og almennings í gegnum skóla og félagasamtök.

Forvarnardagur forseta Íslands er 2. október í grunn- og framhaldsskólum landsins, sérstaklega í 9. bekk og fyrsta ári í framhaldsskóla.

Málsnúmer 2404116

03

Íþróttaþing Garðabæjar

Drög að spurningalista til rýnihópa.

Ásta Sigrún Magnúsdóttir samskiptastjóri Garðabæjar fór yfir minnisblað um undirbúning og framkvæmd íþrótta- og tómstundaþings. Unnið verður áfram samkvæmt þeirri áætlun að undirbúningi.

Fjallað var sérstaklega um drög að spurningalistum til rýnihópa og hvernig best væri að nálgast mismunandi hópa.

Málsnúmer 2404120

04

Þarfagreining varðandi aðstöðu fyrir félags- og tómstundastarf ungs fólks í Garðabæ

Formaður ÍTG og formaður Ungmennaráðs hafa unnið að áfangaskýrslu um ungmennahús í Garðabæ, þarfagreiningu og hugmyndavinnu varðandi aðstöðu fyrir félags- og tómstundastarf ungs fólks í Garðabæ. Með skýrslunni er lögð fram sú tillaga að lagt verði út frá því við gerð fjárhagsáætlunar 2025 að ungmennahús verði stofnað í Garðabæ árið 2025 og opið verði hluta úr viku fyrst um sinn. Fræðslu- og menningarsviði verði falið að vinna að nánari útfærslu að skipulagi ungmennahússins í samráði við ungmennaráð og íþrótta- og tómstundaráð og hafi þá áfangaskýrsluna til hliðsjónar. Íþrótta- og tómstundaráð samþykkti áfangaskýrsluna og tillöguna fyrir sitt leyti og fagnar þessu máli og hvetur til þess að því verði fylgt eftir.

Málsnúmer 2405084

05

Vinnuskólinn 2024

Skýrsla um starfsemi Vinnuskólans sumarið 2024 lögð fram og kynnt.

Skýrsla um starfsemi Vinnuskólans sumarið 2024 var lögð fram og kynnt. Fram kemur í skýrslunni að starfið hafi heilt yfir gengið með ágætum í sumar og samstarf með félögum í bænum verið með besta móti.

Málsnúmer 2408104

06

Umsókn KFG um styrk

Umsókn um aðalstjórnar KFG um styrk vegna þátttöku körfuknattleiksdeildar KFG í 1. deild KKÍ 2024-2025.

ÍTG samþykkir að veita aðalstjórnar KFG styrk að upphæð kr. 850.000 vegna þátttöku körfuknattleiksdeildar KFG í 1. deild KKÍ 2024-2025.

Málsnúmer 2409157

08

Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Umsókn frjálsíþróttadeildar Ármanns vegna Ingeborgar Eide Garðarsdóttur kúluvarpara á Paralympics og HM í frjálsíþróttum fatlaðra.

ÍTG samþykkir að veita afreksstyrk að upphæð kr. 200.000 til frjálsíþróttadeildar Ármanns vegna Ingeborgar Eide Garðarsdóttur kúluvarpara sem keppti á Paralympics í París og mun keppa á HM í frjálsíþróttum fatlaðra 2025.

Málsnúmer 2409014

09

Hákon Atli Bjarkason 121291-2079 - Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Umsókn ÍF vegna Hákons Atla Bjarkasonar borðtennismanns í hjólastólaflokki C5.

ÍTG samþykkir að veita afreksstyrk að upphæð kr. 200.000,- til Íþróttasambands Fatlaðra (ÍF) vegna Hákons Atla Bjarkasonar borðtennismanns í hjólastólaflokki C5 vegna afreksáætlunar hans.

Málsnúmer 2409156

10

Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Umsókn Spretts vegna Guðnýjar Dísar Jónsdóttur hestaíþróttakonu.

ÍTG samþykkir að veita afreksstyrk að upphæð kr. 140.000 til Spretts vegna Guðnýjar Dísar Jónsdóttur hestaíþróttakonu.

Málsnúmer 2409155

11

Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Umsókn Spretts vegna Elvu Rúnar Jónsdóttur hestaíþróttakonu.

ÍTG samþykkir að veita afreksstyrk að upphæð kr. 140.000 til Spretts vegna Elvu Rúnar Jónsdóttur hestaíþróttakonu.

Málsnúmer 2409171

12

Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Umsókn vegna Edens Ólafssonar og Freyju Arkar Sigurðardóttur í samkvæmisdönsum.

ÍTG samþykkir að veita afreksstyrk að upphæð kr. 120.000 til Dansíþróttafélagsins Hvannar vegna Edens Ólafssonar og Freyju Arkar Sigurðardóttur í samkvæmisdönsum.

Málsnúmer 2408579

13

Þórir Bjarni Traustason - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Umsókn til ÍTG um ferðastyrk að upphæð 20.000 kr. til Þóris Bjarna Traustasonar v/HM í Enduro fjallahjólreiðakeppni 10. september á Ítalíu.

ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð 20.000 kr. til Þóris Bjarna Traustasonar v/HM í Enduro fjallahjólreiðakeppni 10. september á Ítalíu.

Málsnúmer 2408546

14

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar - Vigdís Arna Hjartardóttir

Umsókn til ÍTG um ferðastyrk að upphæð 20.000 kr. til Vigdísar Örnu Hjaltadóttur vegna Europian Open U16 í handbolta 1.-5. júní í Svíþjóð.

ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð 20.000 kr. til Vigdísar Örnu Hjaltadóttur vegna Europian Open U16 í handbolta 1.-5. júní í Svíþjóð.

Málsnúmer 2408505

15

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar - Jón Þór Sanne Engilbertsson

Umsókn til ÍTG um ferðastyrk að upphæð 20.000 kr. til Jóns Þórs Sanne Engilbertssonar vegna Taekwondo U16 landsliðs í Letlandi.

ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð 20.000 kr. til Jóns Þórs Sanne Engilbertssonar vegna Taekwondo U16 landsliðs í Letlandi.

Gestir

Málsnúmer 2408348

16

Ásmundur Múli Ármannsson - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Umsókn til ÍTG um ferðastyrk að upphæð 20.000 kr. til Ásmundar Múla Ármannssonar vegna EM U18 i körfubolta í N-Makedóníu 24.júlí til 5. ágúst 2024.

ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð 20.000 kr. til Ásmundar Múla Ármannssonar vegna EM U18 i körfubolta í N-Makedóníu 24.júlí til 5. ágúst 2024.

Málsnúmer 2408344

17

Kolbrún María Ármannsdóttir - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Umsókn til ÍTG um ferðastyrk að upphæð 20.000 kr. til Kolbrúnar Maríu Ármannsdóttur vegna Evrópumóts U18 í körfubolta í Rúmeníu 31.júlí til 12. ágúst 2024.

ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð 20.000 kr. til Kolbrúnar Maríu Ármannsdóttur vegna Evrópumóts U18 í körfubolta í Rúmeníu 31.júlí til 12. ágúst 2024.

Málsnúmer 2409284

18

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr. 20.000 til Þorbjargar Matthíasdóttur vegna V-Evrópumóts í klassískum kraftlyftingum á Möltu 11.-15. september.

ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð kr. 20.000 til Þorbjargar Matthíasdóttur vegna V-Evrópumóts í klassískum kraftlyftingum á Möltu 11.-15. september.

Málsnúmer 2409295

19

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr. 20.000 til Þorbjargar Matthíasdóttur vegna EM í klassískum kraftlyftingum í Króatíu 12.-18.mars 2024.

ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð kr. 20.000 til Þorbjargar Matthíasdóttur vegna EM í klassískum kraftlyftingum í Króatíu 12.-18.mars 2024.

Málsnúmer 2409281

20

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr. 20.000 til Örnu Aspar Gunnarsdóttur vegna V-Evrópumóts í klassískum kraftlyftingum á Möltu 11.-15.september 2024

ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð kr. 20.000 til Örnu Aspar Gunnarsdóttur vegna V-Evrópumóts í klassískum kraftlyftingum á Möltu 11.-15.september 2024.

Málsnúmer 2409280

21

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr. 20.000 til Örnu Aspar Gunnarsdóttur vegna Evrópumóts í klassískum kraftlyftingum í Króatíu 12.-18.03 2024.

ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð kr. 20.000 til Örnu Aspar Gunnarsdóttur vegna Evrópumóts í klassískum kraftlyftingum í Króatíu 12.-18.03 2024.