Beint í efni

Forvarnarvika Garðabæjar 2024

Málsnúmer 2409265

Ferill máls

Leikskólanefnd Garðabæjar

01

25. fundur

Leikskólafulltrúi kynnti metnaðarfulla dagskrá Forvarnarviku sem hófst á Menntadegi Garðabæjar 1. nóvember og lauk forlega með fundi fyrir forráðafólk barna og unglinga sem haldinn var í Sjálandsskóla 12. nóvember. Áhersla forvarnarviku var á góð samskipti og S-in fimm í Samskiptasáttmála Garðabæjar sem eru: seigla, samkennd, sjálfsstjórn, sjálfstæði og skapandi hugsun.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

02

24. fundur

Kynnt var dagskrá forvarnvarviku Garðabæjar sem stendur frá 1.-8. nóvember. Áherslan er á "Góð samskipti" og S-in fimm í Samskiptasáttmála Garðabæjar sem eru: Samkennd, seigla, sjálfsstjórn, sjálfstæði og skapandi hugsun.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

03

32. fundur

Dagskrá forvarnaviku Garðabæjar 1. til 8. nóvember til umræðu.

Dagskrá forvarnaviku Garðabæjar 1. til 8. nóvember var til áfram haldandi umræðu.
Áherslan verður á „Góð samskipti“ og S-in fimm í Samskiptasáttmála Garðabæjar sem eru:
Samkennd, seigla, sjálfsstjórn, sjálfstæði, skapandi hugsun.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

04

31. fundur

Forvarnavika Garðabæjar verður haldinn 1.til 8. nóvember 2024.
Menntadagur Garðabæjar er 1. nóvember og dagur gegn einelti er 8. nóvember.
Þema forvarnavikunnar er Samskipti - S-in 5: "samkennd - seigla - sjálfsstjórn - sjálfstæði - skapandi hugsun".
Forvarnardagur forseta Íslands er 2. október í grunn- og framhaldsskólum landsins, sérstaklega í 9. bekk og fyrsta ári í framhaldsskóla.

Forvarnavika Garðabæjar verður haldinn 1. til 8. nóvember 2024.
Menntadagur Garðabæjar er 1. nóvember og dagur gegn einelti er 8. nóvember.
Þema forvarnavikunnar nú er Samskipti - S-in 5: "samkennd - seigla - sjálfsstjórn - sjálfstæði - skapandi hugsun". Áhersla er á að ná til barna, foreldra og almennings í gegnum skóla og félagasamtök.
Forvarnardagur forseta Íslands er 2. október í grunn- og framhaldsskólum landsins, sérstaklega í 9. bekk og fyrsta ári í framhaldsskóla.