Beint í efni

49. fundur

08.04.2026
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

49. fundur

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

í íþróttahúsinu Miðgarði

08.04.2026

Kl. 16:00 - 17:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - formaður
  • Harpa Rós Gísladóttir - aðalmaður
  • Guðjón Pétur Lýðsson - aðalmaður
  • Lilja Lind Pálsdóttir - varamaður
  • Hlynur Elías Bæringsson - varamaður

Starfsmenn

  • Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs

Ritari

  • Kári Jónsson

Dagskrá

Málsnúmer 2604031

01

Vígsla fundarýma og setustofu á 2.h í Miðgarði

Í dag eru formlega tekin í notkun fundarými og borðsalur á 2. hæð Miðgarðs. Þeim er ætlað að vera stoðrými fyrir alla starfsemi félagasamtaka í Garðabæ sem þurfa á fundaraðstöðu að halda.

Af því tilefni heldur ÍTG sinn 49. fund á kjörtímabilinu hér í þessu nýja rými.

Fundarými og borðsalur á 2. hæð Miðgarðs voru formlega tekin í notkun 8. apríl sl. Aðstöðunni er ætlað að vera stoðrými fyrir starfsemi félagasamtaka í Garðabæ. Þá er jafnframt lögð áhersla á að 2. hæð Miðgarðs þróist sem lifandi miðstöð þar sem kynslóðir mætast, efla tengsl sín og njóta samveru. Af þessu tilefni var 49. fundur ÍTG á kjörtímabilinu haldinn í hinu nýja rými.

Málsnúmer 2404116

02

Íþróttaþing Samráðsfundur Íþróttafélaga Garðabæjar

Íþróttaþing, vinnustofa íþróttafélag í Garðabæ var haldin í Miðgarði 23. mars sl. Góðar umræður voru á borðum þar sem fundarmenn glímdu við að svara fjórum mikilvægum spurningum um starfið í bænum.

Fram kom hjá fundarmönnum að:

Sterkt og metnaðarfullt íþróttasamfélag er í Garðabæ.

Áskoranir í innviðum og íþróttaaðstöðu vegna fólksfjölgunar.

Þjónusta nær ekki til allra hópa, s.s. fatlaðra barna og ungmenna.

Þörf er á skýrri framtíðarsýn og samhæfingu í starfi félaga.

ÍTG þakkar þátttakendum á íþróttaþingi og vinnustofu íþrótta- og tómstundafélaga í Garðabæ, sem fram fór í Miðgarði 23. mars sl., fyrir gagnlegar umræður. Á þinginu kom fram að í Garðabæ væri öflugt og fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf, þar sem 22 íþrótta- og tómstundafélög starfa í bænum. Rætt var um mikilvægi þess að innviðir og aðstaða þróist áfram í góðu samræmi við fólksfjölgun og þarfir samfélagsins. Jafnframt var áréttað að þjónustan þurfi að ná til allra hópa, svo sem fatlaðra barna og ungmenna, og að áfram verði unnið að skýrri framtíðarsýn, bættri samhæfingu og auknu samstarfi milli félaganna.

Málsnúmer 2604030

03

Sumarnámskeið barna 2026

Upplýsingar um framsetningu kynninga á sumarnámskeiðum barna í Garðabæ 2026 á vefnum "fristund.is". Unnið er að því að aðlaga vefinn að þörfum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi útlit og leitarmöguleika.

Upplýst var um framsetningu kynninga á sumarnámskeiðum barna í Garðabæ 2026 á vefnum "fristund.is". Unnið er að því að aðlaga vefinn að þörfum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi útlit og leitarmöguleika. Þannig eiga öll námskeið sem sett eru upp hjá félögunum í Abler eða Völu að birtast sjálfkrafa inni í fristund.is. Foreldrar geta þá leitað að námskeiðstilboðum eftir póstnúmeri, tímabilum, áhugasvið og aldursviðmiði.

Stefnt er að því að full virkni verði komin á fristund.is 23. apríl nk.

Málsnúmer 2601351

04

Hönnun - Útboð -Lambamýri 2. áfangi - Frístundaþjónusta fyrir fötluð ungmenni

Sagt frá því að lögð hefur verið fram útboðslýsing innanhússfrágangs félagsmiðstöðvar frístundaþjónustu fyrir fötluð ungmenni að Lambamýri 1-3.

Lögð var fram til kynningar útboðslýsing vegna innanhússfrágangs fyrir Félagsmiðstöð fatlaðra ungmenna í Garðabæ og frístundaþjónustu að Lambamýri 1?3. Málið var áður tekið fyrir á fundi bæjarráðs 17. mars sl., þar sem samþykkt var að fela umhverfissviði framkvæmd útboðsins fyrir hönd Garðabæjar. Félagsmiðstöð eldri borgara í Lambamýri hefur verið tekin í notkun og gefist vel. Samkvæmt útboðslýsingu er gert ráð fyrir verklokum 1. september 2026. Íþrótta- og tómstundaráð fagnar öflugu félagsstarfi í bænum og lýsir ánægju með að Félagsmiðstöð fatlaðra ungmenna verði tekin í notkun í Garðabæ í haust.