Beint í efni

Sumarnámskeið barna 2026

Málsnúmer 2604030

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

50. fundur

Sumarnámskeið barna 2026 eru nú birt á vef Garðabæjar og á fristund.is.
32 mismunandi tilboð verða í gangi fyrir 6-9 ára börn frá skólalokum til skólabyrjunar. Opið verður í frístund fyrir 1. og 2. bekk vikuna fyrir skólabyrjun í haust.

Sumarnámskeið barna 2026 eru nú birt á vef Garðabæjar og á fristund.is
32 mismunandi tilboð verða í gangi fyrir 6-9 ára börn frá skólalokum til skólabyrjunar. ​
Opið verður í frístund fyrir 1. og 2. bekk vikuna fyrir skólabyrjun í haust.​

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

02

49. fundur

Upplýsingar um framsetningu kynninga á sumarnámskeiðum barna í Garðabæ 2026 á vefnum "fristund.is". Unnið er að því að aðlaga vefinn að þörfum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi útlit og leitarmöguleika.

Upplýst var um framsetningu kynninga á sumarnámskeiðum barna í Garðabæ 2026 á vefnum "fristund.is". Unnið er að því að aðlaga vefinn að þörfum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi útlit og leitarmöguleika. Þannig eiga öll námskeið sem sett eru upp hjá félögunum í Abler eða Völu að birtast sjálfkrafa inni í fristund.is. Foreldrar geta þá leitað að námskeiðstilboðum eftir póstnúmeri, tímabilum, áhugasvið og aldursviðmiði.
Stefnt er að því að full virkni verði komin á fristund.is 23. apríl nk.