42. fundur
42. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í Garðabæ
17.09.2025
Kl. 08:00 - 09:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - formaður
- Harpa Rós Gísladóttir - aðalmaður
- Laufey Jóhannsdóttir - aðalmaður
- Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Arnar Hólm Einarsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi
- Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi
Ritari
- Kári Jónsson
Fundurinn er haldinn í Golfskála GKG.
Formaður upplýsti um að valnefnd vegna útleigu rýmis á 2. hæð Miðgarðs hefði skilað af sér tillögu um að gengið verði til samninga við Sjúkraþjálfun Garðabæjar.
ÍTG óskar Lyftingadeild Stjörnunnar til hamingju með vel heppnað mót og Stjörnumönnum fyrir góðan árangur, meðal annars Norðulandameistaratitil, á Norðurlandamóti unglinga í kraftlyftingum í Miðgarði dagana 12.-14. september. ÍTG fagnar því að stórmót séu haldin í íþróttamannvirkjum bæjarins og gangi vel eins og raun bar vitni.
Dagskrá
Málsnúmer 2509261
01
Afreksstyrkir 2025 - seinni úthlutun
Fyrir eru teknar umsóknir um afreksstyrki vegna einstaklinga skv. grein 3.3. í reglugerð um afreksstefnu Garðabæjar frá 2023. Um er að ræða seinni húthlutun. Áður hefur verið úthlutað 1.550.000,-
Til úthlutunar nú eru 1.650.000,-
ÍTG samþykkir afreksstyrki til eftirfarandi félaga vegna afreksfólks sem býr í Garðabæ eða stundar keppnisíþróttir á afreksstigi með félögum í Garðabæ.
Alls hlutu 10 umsóknir styrk að upphæð kr. 1.650.000,- í þessari seinni úthlutun afreksstyrkja.
Frjálsíþróttadeild FH vegna Irmu Gunnarsdóttur kr. 350.000,-
Frjálsíþróttadeild FH vegna Bjarka Fannars Benediktssonar kr. 100.000,-
GKG vegna Gunnlaugs Árna Sveinssonar kr. 50.000,- (áður úthlutað á árinu kr. 300.000,-)
GKG vegna Sigurðar Arnars Garðarssonar kr. 350.000,-
ÍFR vegna Hákons Atla Bjarkasonar borðtennismanns kr. 350.000,-
Sprettur vegna Herdísar Bjargar Jóhannsdóttur kr. 150.000,- (áður úthlutað á árinu kr. 100.000,-)
Sprettur vegna Huldu Maríu Sveinbjörnsdóttur kr. 50.000,- (áður úthlutað á árinu kr. 100.000,-)
Boginn vegna Þórdísar Unnar Bjarkadóttur kr. 50.000,- (áður úthlutað á árinu kr. 225.000,-)
Stjarnan áhaldafimleikar vegna Sigurrósar Ástu Þórisdóttur kr. 100.000,-
Dansfélag Reykjavíkur DFR vegna Freyju Arkar Sigurðardóttur kr. 100.000,-
Málsnúmer 2508353
02
Umsókn um styrk til handknattleiksdeildar Stjörnunnar vegna forkeppni Evrópudeildar
Umsókn handknattleiksdeildar um styrk vegna þátttöku í forkeppni Evrópudeildar í meistaraflokki karla.
Heildar kostnaður við þátttökuna er 5 milljónir króna. Sótt er um styrk að upphæð kr. 500.000,-
Hrannar Bragi Eyjólfsson vék af fundi undir þessum lið.
ÍTG samþykkir að greiða ferðastyrk til handknattleiksdeildar Stjörnunnar vegna þátttöku í forkeppni Evrópudeildar í meistaraflokki karla að upphæð kr. 500.000,-
Málsnúmer 2508208
03
Reglur um ferðastyrki ÍTG
Endurskoðun reglugerðar vegna ferðastyrkja ÍTG vegna landsliðsferða. Framhald umræðna frá síðasta fundi.
ÍTG fór yfir endurskoðaðar reglur um ferðastyrki og leggur þær fyrir bæjarráð til samþykktar.
Megin breytingin er styrkuppæð fyrir hverja ferð í landsliðsverkefnum verði 50.000,- kr. í stað 20.000,-. Áfram er miðað við tvær ferðir á ári en hægt að sækja um fleiri ferðir ef sérstakar aðstæður einstaklinga gefa tilefni til þess. Slík tilfelli eru þá metin sérstaklega af ráðinu.
Bókun: ÍTG hvetur til þess að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu geri úttekt á reglum sem gilda um ferðastyrki á svæðinu og skoði fýsileika þess að þær verða samræmdar eins og kostur er.
Málsnúmer 2506180
04
Forvarnavika Garðabæjar 2025
Forvarnavika Garðabæjar 2025 verður haldin 29. október til 5. nóvember.
Forvarnavika Garðabæjar 2025 verður haldin 29. október til 5. nóvember.
Fræðslu- og frístundasvið hefur verið að undirbúa dagskrá og verið að vinna með hugmyndir að þema vikunnar.
- Áhersla á félagslega virkni og þátttöku í skipulögðu starfi
- Virkni foreldra, samvera með börnunum - gæðastundir - foreldrar þekkja vini barnanna - virða útivistartíma - setja mörk og standa við þau.
- Netofbeldi-, öryggi- og siðferði.
Málsnúmer 2404116
05
Íþrótta- og tómstundaþing Garðabæjar
Umræða um gátlista og tímasetningar.
Markmið íþrótta- og tómstundaþings er að vekja athygli, rýna starfið í bæjarfélaginu, byggja á tölfræði og hlusta á hagaðila. Áhersla er á að safna viðhorfum og skapa yfirsýn. Sjá hvað er vel gert og hvað má betur gera.
Miðað er við að ná til breiðs hóps almennings, félaga og iðkenda, skóla og félagsmiðstöðva.
Spurningakannanir verða sendar út á markhópa sem unnið verður úr og niðurstöður settar í umræðuhópa.
Stefnt er á að halda íþrótta- og tómstundaþingið seinnihluta október.
Málsnúmer 2509254
06
Framtíðar uppbygging íþróttaaðstöðu
Umræður um framtíðar þarfir uppbyggingar íþróttamannvirkja í Garðabæ.
ÍTG leggur til að fræðslu- og frístundasviði og formanni íþrótta- og tómstundaráðs verði falið að hefja vinnu við þarfagreiningu vegna áframhaldandi uppbyggingar á íþróttamannvirkjum í Miðgarði. Íþrótta- og tómstundaráð skal skila af sér tillögum til bæjarráðs í desember 2025.
Starf hópsins byggi á gildandi deiliskipulagi sem gerir ráð fyrir knattspyrnuleikvangi og nýju íþróttahúsi við hlið núverandi íþróttahúss.
Þarfagreining verði unnin í samstarfi við Fræðslu- og frístundasvið, sérstaklega m.t.t. þarfa skóla, frístundastarfs og annarra hagaðila, svo og íþrótta- og tómstundafélög bæjarins.
Forsendur: Talsverð uppbygging íbúðarhúsnæðis í Vetrarmýri og Hnoðraholti er hafin. Fólksfjölgun síðustu ára, einkum í Urriðaholti, Álftanesi og Ásahverfi. Vaxandi þörf skóla og félaga í bænum fyrir íþróttaaðstöðu til að mæta fólksfjölgun og móttöku stærri íþróttaviðburða.
Málsnúmer 2509263
07
GKG kynning fyrir ÍTG
Formaður GKG Jón Júlíusson og framkvæmdastjóri GKG Agnar Gústafsson fara yfir málefni varðandi rekstur og frámtíðaruppbyggingu golfklúbbsins.
Formaður GKG Jón Júlíusson og framkvæmdastjóri GKG Agnar Gústafsson fóru yfir málefni varðandi rekstur og framtíðaruppbyggingu golfklúbbsins. Fram kom að 2940 manns eru nú skráð í GKG, þar af 880 í barna og unglingastarfi og 420 eldri borgarar. Mikill áhugi er á að skrá sig í klúbbinn og eru um 800 manns á biðlista. Alls stunda 14% íbúa í Garðabæ golf skv. tölum frá GSÍ.
Megin erindi GKG við Garðabæ er að klára samninga um nýja áhalda og þjónustu byggingu. Núverandi þjónustuhús mun víkja innan tveggja ára.
Málsnúmer 2509128
08
Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Umsókn Hestamannafélagsins Spretts um afreksstyrk.
Nafn íþróttamsnns: Herdís Björg Jóhannsdóttir
ÍTG samþykkir að veita Hestamannafélaginu Spretti afreksstyrk kr. 150.000,-
Nafn íþróttamanns: Herdís Björg Jóhannsdóttir
Áður afgreitt á árinu 2025 kr. 100.000,-
Málsnúmer 2508489
09
Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Umsókn um afreksstyrk frá Hestamannafélaginu Spretti.
nafn íþróttamanns: Hulda María Sveinbjörnsdóttir
ÍTG samþykkir að veita Hestamannafélaginu Spretti afreksstyrk kr. 50.000,-
Nafn íþróttamanns: Hulda María Sveinbjörnsdóttir
Áður afgreitt á árinu 2025 kr. 100.000,-
Málsnúmer 2509122
10
Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Umsókn um afreksstyrk frá GKG.
Nafn íþróttamanns: Sigurður Arnar Garðarsson
ÍTG samþykkir að veita GKG afreksstyrk kr. 350.000,-
Nafn íþróttamanns: Sigurður Arnar Garðarsson
Málsnúmer 2509014
11
Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Umsókn um afreksstyrk frá GKG.
Nafn íþróttamanns: Gunnlaugur Árni Sveinsson
ÍTG samþykkir að veita GKG afreksstyrk kr. 50.000,-
Nafn íþróttamanns: Gunnlaugur Árni Sveinsson
Áður afgreitt á árinu 2025 kr. 300.000,-
Málsnúmer 2508279
12
Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Umsókn um afreksstyrk frá frjálsíþróttadeild FH.
nafn íþróttamanns: Irma Gunnarsdóttir
ÍTG samþykkir að veita Frjálsíþróttadeild FH afreksstyrk kr. 350.000,-
Nafn íþróttamanns: Irma Gunnarsdóttir
Málsnúmer 2508466
13
Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Umsókn um afreksstyrk frá Boganum.
nafn íþróttamanns: Þórdís Unnur Bjarkadóttir
ÍTG samþykkir að veita Boganum afreksstyrk kr. 50.000,-
Nafn íþróttamanns: Þórdís Unnur Bjarkadóttir
Áður afgreitt á árinu 2025 kr. 225.000,-
Málsnúmer 2509121
14
Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Umsókn um afreksstyrk frá Frjálsíþróttadeild FH.
Nafn íþróttamanns Bjarki Fannar Benediktsson
ÍTG samþykkir að veita Frjálsíþróttadeild FH afreksstyrk kr. 100.000,-
Nafn íþróttamanns: Bjarki Fannar Benediktsson
Málsnúmer 2509114
15
Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Umsókn um afrekssstyrk frá Fimleikadeild Stjörnunnar, áhaldafimleikar.
Nafn íþróttamanns: Sigurrós Ásta Þórisdóttir
ÍTG samþykkir að veita Fimleikadeild Stjörnunnar afreksstyrk kr. 100.000,-
Nafn íþróttamanns: Sigurrós Ásta Þórisdóttir
Málsnúmer 2509009
16
Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Umsókn um afreksstyrk frá Dansfélagi Reykjavíkur.
Nafn íþróttamanns: Freyja Örk Sigurðardóttir
ÍTG samþykkir að veita Dansfélagi Reykjavíkur afreksstyrk kr. 100.000,-
Nafn íþróttamanns: Freyja Örk Sigurðardóttir
Málsnúmer 2508319
17
Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Umsókn um afreksstyrk frá ÍFR.
nafn íþróttamanns: Hákon Atli Bjarkason
ÍTG samþykkir að veita ÍFR afreksstyrk kr. 350.000,-
Nafn íþróttamanns: Hákon Atli Bjarkason
Málsnúmer 2509012
18
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur kr. 20.000 til Þorbjargar Matthíasardóttur vegna V-Evrópumóts íklassískum kraftlyftingum í Finnlandi 11. september 2025
ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Þorbjargar Matthíasardóttur vegna V-Evrópumóts í klassískum kraftlyftingum í Finnlandi 11. september 2025.
Málsnúmer 2509104
19
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur kr. 20.000 til Herdísar Bjargar Jóhannsdóttur vegna HM Íslenska hestsins í Sviss í ágúst 2025.
ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Herdísar Bjargar Jóhannsdóttur vegna HM Íslenska hestsins í Sviss í ágúst 2025.
Málsnúmer 2508424
20
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur kr. 20.000 til Vigdísar Örnu Hjartardóttur vegna EM U-17 í handbolta í Svartfjallalandi 28.júlí til 11. ágúst 2025.
ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Vigdísar Örnu Hjartardóttur vegna EM U-17 í handbolta í Svartfjallalandi 28.júlí til 11. ágúst 2025.
Málsnúmer 2508423
21
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur kr. 20.000 til Vigdísar Örnu Hjartardóttur vegna EYOF í handbolta í Skopje, Makedóníu 18.-28.júlí 2025
ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Vigdísar Örnu Hjartardóttur vegna EYOF í handbolta í Skopje, Makedóníu 18.-28.júlí 2025
Málsnúmer 2508352
22
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur kr. 20.000 til Björns Skúla Birnissonar vegna EM U-18 í körfubolta í Rúmeníu 29.júlí 2025
ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Björns Skúla Birnissonar vegna EM U-18 í körfubolta í Rúmeníu 29.júlí 2025.
Málsnúmer 2508351
23
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur kr. 20.000 til Björns Skúla Birnissonar vegna NM U-18 í körfubolta í Svíþjóð 25.júní 2025.
ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Björns Skúla Birnissonar vegna NM U-18 í körfubolta í Svíþjóð 25.júní 2025.
Málsnúmer 2508293
24
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur kr. 20.000 til Hönnu Jónu Sigurjónsdóttur vegna V-Evrópumóts í kraftlyftingum í Finnlandi 11. september 2025.
ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Hönnu Jónu Sigurjónsdóttur vegna V-Evrópumóts í kraftlyftingum í Finnlandi 11. september 2025.
Málsnúmer 2508291
25
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur kr. 20.000 til Arons Friðriks Georgssonar vegna V-Evrópumóts í kraftlyftingum í Finnlandi 11. september 2025.
ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Arons Friðriks Georgssonar vegna V-Evrópumóts í kraftlyftingum í Finnlandi 11. september 2025.
Málsnúmer 2508215
26
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur kr. 20.000 til Jakobs Kára Leifssonar vegna EM U-18 í körfubolta í Rúmeníu 29.júlí 2025
ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Jakobs Kára Leifssonar vegna EM U-18 í körfubolta í Rúmeníu 29.júlí 2025
Málsnúmer 2508214
27
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur kr. 20.000 til Jakobs Kára Leifssonar vegna NM U-18 í körfubolta í Svíþjóð 25. júní 2025.
ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Jakobs Kára Leifssonar vegna NM U-18 í körfubolta í Svíþjóð 25. júní 2025.
Málsnúmer 2508187
28
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur kr. 20.000 til Berglindar Kötlu Hlynsdóttur vegna NM U-15 í körfubolta í Finnlandi 2. ágúst 2025.
ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Berglindar Kötlu Hlynsdóttur vegna NM U-15 í körfubolta í Finnlandi 2. ágúst 2025.