Beint í efni

Reglur um ferðastyrki ÍTG

Málsnúmer 2508208

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

13. (965). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

13. (965). fundur

Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi tillögu að breytingum á reglum Garðabæjar um ferðastyrki til íþróttafólks Garðabæjar vegna þátttöku í landsliðsverkefnum erlendis.

Bæjarráð Garðabæjar

03

34. (2182). fundur

Lagðar fram tillögur Íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar vegna endurskoðun á reglum um ferðastyrki til íþróttafólks Garðabæjar vegna þátttöku í landsliðsverkefnum erlendis.
Megin breyting reglnanna er að styrkfjárhæð fyrir hverja ferð í landsliðsverkefnum verði kr. 50.000 í stað kr. 20.000. Áfram verði miðað við tvær ferðir á ári en hægt að sækja um fleiri ferðir ef sérstakar aðstæður einstaklinga gefa tilefni til þess. Slík tilfelli verða þá metin sérstaklega.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi tillögu að breytingum á reglum um ferðastyrki til íþróttafólks Garðabæjar vegna þátttöku í landsliðsverkefnum erlendis.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

04

42. fundur

Endurskoðun reglugerðar vegna ferðastyrkja ÍTG vegna landsliðsferða. Framhald umræðna frá síðasta fundi.

ÍTG fór yfir endurskoðaðar reglur um ferðastyrki og leggur þær fyrir bæjarráð til samþykktar.
Megin breytingin er styrkuppæð fyrir hverja ferð í landsliðsverkefnum verði 50.000,- kr. í stað 20.000,-. Áfram er miðað við tvær ferðir á ári en hægt að sækja um fleiri ferðir ef sérstakar aðstæður einstaklinga gefa tilefni til þess. Slík tilfelli eru þá metin sérstaklega af ráðinu.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

05

41. fundur

Vegna fjárhagsáætlunar 2026 eru reglur um ferðastyrki ÍTG til umræðu.
Núverandi reglur:
Einstaklingar sem stunda íþróttir með félögum innan Garðabæjar eða eiga lögheimili í Garðabæ geta sótt um ferðastyrki til íþrótta og tómstundaráðs Garðabæjar (ÍTG) vegna ferða á vegum landsliða Íslands erlendis. Greiði sérsamband eða aðrir aðilar fyrir ferð eða veiti viðkomandi styrk getur ekki komið til styrkur frá ÍTG.
Í dag er styrkupphæð 20.000 kr. fyrir hverja ferð sem farin er og skv. reglum ÍTG er einungis unnt að veita sama aðila tvisvar sinnum á ári slíkan styrk.

Formaður lagði fram drög að endurskoðuðum reglum um ferðastyrki ÍTG vegna landsliðsferða einstaklinga. Góðar umræður fóru fram um ýmis atriði í reglunum en ráðið stefnir að því að leggja nýjar reglur fyrir bæjarráð í september eða október nk.