Beint í efni

41. fundur

20.08.2025
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

41. fundur

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

20.08.2025

Kl. 08:00 - 09:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - formaður
  • Harpa Rós Gísladóttir - aðalmaður
  • Laufey Jóhannsdóttir - aðalmaður
  • Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Arnar Hólm Einarsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs

Ritari

  • Kári Jónsson

Gestur fundarins var Ragnhildur Jónasdóttir forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar Urra í Urriðaholti og Ungmennahúss Garðabæjar.

Dagskrá

Málsnúmer 2508198

01

Starfsáætlun ÍTG 2025 til 2026

Formaður ÍTG leggur fram drög að starfsáætlun ÍTG fyrir starfsárið 2025 til 2026

Formaður kynnti og lagði tillögu að starfsáætlun íþrótta- og tómstundaráðs fyrir veturinn 2025/2026 og var hún samþykkt.

Málsnúmer 2501033

02

Afreksstyrkir 2025

Afreksstyrkir ÍTG - haust úthlutun, hafa verið settir í auglýsingu á vef bæjarins, fésbókarsíðu og í Garðapóstinum. Umsóknarfrestur er til og með 7. september nk. á þar til gerðum eyðublöðum í gegnum ?þjónustugátt Garðabæjar?.

Með öllum umsóknum skal leggja fram afreksstefnu viðkomandi félags og umsögn um viðkomandi einstakling.

Afreksstyrkir ÍTG - haust úthlutun, hafa verið settir í auglýsingu á vef bæjarins, fésbókarsíðu og í Garðapóstinum. Umsóknarfrestur er til og með 7. september nk. á þar til gerðum eyðublöðum í gegnum þjónustugátt Garðabæjar.

Með öllum umsóknum skal leggja fram afreksstefnu viðkomandi félags og umsögn um viðkomandi einstakling.

Málsnúmer 2508208

03

Reglur um ferðastyrki ÍTG

Vegna fjárhagsáætlunar 2026 eru reglur um ferðastyrki ÍTG til umræðu.

Núverandi reglur:

Einstaklingar sem stunda íþróttir með félögum innan Garðabæjar eða eiga lögheimili í Garðabæ geta sótt um ferðastyrki til íþrótta og tómstundaráðs Garðabæjar (ÍTG) vegna ferða á vegum landsliða Íslands erlendis. Greiði sérsamband eða aðrir aðilar fyrir ferð eða veiti viðkomandi styrk getur ekki komið til styrkur frá ÍTG.

Í dag er styrkupphæð 20.000 kr. fyrir hverja ferð sem farin er og skv. reglum ÍTG er einungis unnt að veita sama aðila tvisvar sinnum á ári slíkan styrk.

Formaður lagði fram drög að endurskoðuðum reglum um ferðastyrki ÍTG vegna landsliðsferða einstaklinga. Góðar umræður fóru fram um ýmis atriði í reglunum en ráðið stefnir að því að leggja nýjar reglur fyrir bæjarráð í september eða október nk.

Málsnúmer 2404116

04

Íþróttaþing Garðabæjar

Stefnt er að íþrótta- og tómstundaþingi Garðabæjar í október með þátttöku fulltrúa félagasamtaka og félagsmiðstöðva í Garðabæ.

Íþrótta- og tómstundaþing Garðabæjar verður haldið í október næstkomandi. Góðar umræður fóru fram um fyrirhugaða greiningarvinnu og fyrirkomulag umræðna á þinginu. Fulltrúar íþrótta- og tómstundafélaga verða boðaðir til þingsins ásamt öðrum hagaðilum í bænum sem tengjast íþrótta- og frístundastarfi.

Málsnúmer 2408295

05

Fótbolti fyrir alla - styrkbeiðni

Styrkbeiðni til að geta haldið úti sérhæfðu íþróttastarfi fyrir börn og ungmenni með fötlun. Um er að ræða framhald af verkefni síðustu tveggja ára, "fótbolti fyrir alla" sem Stjarnan hefur haldið úti í samstarfi við íþróttafélagið Ösp í Reykjavík.

ÍTG samþykkir að veita styrk að upphæð kr. 1.000.000 til Stjörnunnar til að geta haldið úti sérhæfðu íþróttastarfi fyrir börn og ungmenni með fötlun.

Um er að ræða framhald af verkefni síðustu tveggja ára, "fótbolti fyrir alla" sem Stjarnan hefur haldið úti í samstarfi við íþróttafélagið Ösp í Reykjavík.

Málsnúmer 2503008

06

Sinfó í sundi - Samfélagsgleði um allt land í lok ágúst

Sinfó í sundi verður í Álftaneslaug 29. ágúst á stórum skja með hljóðkerfi svo gestir geti notið þess á sundlaugarsvæðinu.

ÍTG vekur athygli á viðburðinum "Sinfó í sundi" sem verður í Álftaneslaug 29. ágúst klukkan 20:00 á stórum skjá með hljóðkerfi svo gestir geti notið þess á sundlaugarsvæðinu.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2008582

07

Ungmennahús undirbúningsvinna

Ungmennahús Garðabæjar hefur starfsemi nú á haustmánuðum undir stjórn Ragnhildar Jónasdóttur í samvinnu við Ungmennaráð Garðabæjar. Höfuðstöðvar Ungmennahúss verða á Garðatorgi en starfsemi klúbba um hin ýmsu áhugamál fer fram þar sem aðstaða er til í Garðabæ.

Ragnhildur Jónasdóttir sem ráðin hefur verið verkefnisstjóri við opnun Ungmennahúss í Garðabæ kynnti stöðu verkefnisins.

Ungmennahús Garðabæjar fyrir 16 til 25 ára hefur starfsemi nú á haustmánuðum í samvinnu við Ungmennaráð Garðabæjar. Höfuðstöðvar Ungmennahúss verða á Garðatorgi við hlið Gróskusalarins en starfsemi klúbba um hin ýmsu áhugamál fer fram þar sem aðstaða er til í Garðabæ. Stefnt er að formlegri opnun 10. október nk.

Málsnúmer 2506010

08

Kvöldakstur Strætó

Aukin ferðatíðni Strætó á leið 22 og 23 innan Garðabæjar

ÍTG fagnar lengingu á kvöldakstri Strætó á leiðum 22 og 23. innan Garðabæjar sem miðar að þörfum ungs fólks. Þetta hefur strax mikil áhrif á starfsemi íþróttafélaga og félagsmiðstöðva auk annarra sem bjóða þjónustu fyrir unglinga og ungmenni.

Málsnúmer 2506707

09

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrk kr. 20.000 til Sigurrósar Ástu Þórisdóttur vegna unglingalandsliðsferðar á EYOF í Króatíu 19. júlí 2025.

ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Sigurrósar Ástu Þórisdóttur vegna unglingalandsliðsferðar á EYOF í Króatíu 19. júlí 2025.

Málsnúmer 2506638

10

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr. 20.000 til Benedikts Björgvinssonar vegna NM í körfubolta í Svíþjóð 25.06. 2025

ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Benedikts Björgvinssonar vegna NM í körfubolta í Svíþjóð 25.06. 2025

Málsnúmer 2501013

11

Jón Þór Sanne Engilbertsson - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr. 20.000,- til Jóns Þórs Sanne vegna B-landsliðs á Dutch Open taekwondo championcships 2024.

ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000,- til Jóns Þórs Sanne vegna B-landsliðs á Dutch Open taekwondo championcships 2024.

Málsnúmer 2506535

12

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr. 20.000 til Kristins Sturlusonar vegna U15 í körfubolta á Nordic open í Finnlandi 2. ágúst 2025

ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Kristins Sturlusonar vegna U15 í körfubolta á Nordic open í Finnlandi 2. ágúst 2025.

Málsnúmer 2506487

13

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr. 20.000 til Úlfs Týs Ágústssonar vegna NM U15 í körfubolta í Finnlandi 3. ágúst 2025.

ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Úlfs Týs Ágústssonar vegna NM U15 í körfubolta í Finnlandi 3. ágúst 2025.

Málsnúmer 2506402

14

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr. 20.000 til Kormáks Nóa Jack vegna NM U16 í körfubolta í Finnlandi 30.6.2025

ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Kormáks Nóa Jack vegna NM U16 í körfubolta í Finnlandi 30.6.2025

Málsnúmer 2506366

15

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr. 20.000 til Heiðrúnar Bjargar Hlynsdóttur vegna NM U18 kvenna í Svíþjóð 14. júní 2025.

ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Heiðrúnar Bjargar Hlynsdóttur vegna NM U18 kvenna í Svíþjóð 14. júní 2025.

Málsnúmer 2507010

16

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr. 20.000 til Kolbrúnar Maríu Ármannsdóttur vegna NM U18 kvenna í Svíþjóð 13. júní 2025.

ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Kolbrúnar Maríu Ármannsdóttur vegna NM U18 kvenna í Svíþjóð 13. júní 2025.

Málsnúmer 2507109

17

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr. 20.000 til Eyjólfs Guðgeirssonar vegna Smáþjóðaleika í hjólreiðum á vegum HRÍ 25.05 - 01.06. 2025

ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Eyjólfs Guðgeirssonar vegna Smáþjóðaleika í hjólreiðum á vegum HRÍ 25.05 - 01.06. 2025

Málsnúmer 2507028

18

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr. 20.000 til Heiðrúnar Bjargar Hlynsdóttur vegna Evrópumóts U18 kvenna í körfubolta 3. júlí 2025.

ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Heiðrúnar Bjargar Hlynsdóttur vegna Evrópumóts U18 kvenna í körfubolta 3. júlí 2025.

Málsnúmer 2507027

19

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr. 20.000 til Berglindar Kötlu Hlynsdóttur vegna NM U16 í körfubolta 30. júní 2025 í Finnlandi.

ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Berglindar Kötlu Hlynsdóttur vegna NM U16 í körfubolta 30. júní 2025 í Finnlandi.

Málsnúmer 2507022

20

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr. 20.000 til Marinós Freys Ómarssonar vegna NM U15 karla í Finnlandi 2.-9. ágúst 2025.

ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Marinós Freys Ómarssonar vegna NM U15 karla í Finnlandi 2.-9. ágúst 2025.

Málsnúmer 2506133

21

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr. 20.000 til Daníels Geirs Snorasonar vegna NM U16 karla í körfubolta 30.júní 2025 í Finnlandi.

ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Daníels Geirs Snorasonar vegna NM U16 karla í körfubolta 30.júní 2025 í Finnlandi.

Málsnúmer 2506019

22

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr. 20.000 til Hans Jörgens Ólafssonar vegna HM U21 í handbolta karla 17.06.2025 í Póllandi.

ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Hans Jörgens Ólafssonar vegna HM U21 í handbolta karla 17.06.2025 í Póllandi.

Málsnúmer 2505382

23

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr. 20.000 til Matthíasar Dags Þorsteinssonar vegna Ólympíuhátíðar Evrópuæskunnar U17 í handbolta karla 19-26.júlí 2025.

ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Matthíasar Dags Þorsteinssonar vegna Ólympíuhátíðar Evrópuæskunnar U17 í handbolta karla 19-26.júlí 2025.

Málsnúmer 2503278

24

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr. 20.000 vegna Dance World Cup á Burgos, Spáni 03.07.2025 á vegum Ungleikhússins flokkur PPU.

ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Ísabellu Waage Castillo vegna Dance World Cup á Burgos, Spáni 03.07.2025 á vegum Ungleikhússins flokkur PPU.

Málsnúmer 2507366

25

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrk kr. 20.000 til Kormáks Nóa Jack vegna U16 í körfubolta til Makedóníu 5. ágúst 2025.

ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Kormáks Nóa Jack vegna U16 í körfubolta til Makedóníu 5. ágúst 2025.

Málsnúmer 2508141

26

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr. 20.ooo til Baltasar Torfa Hlynssonar vegna NM U-15 karla í Finnlandi 3. ágúst 2025

ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.ooo til Baltasar Torfa Hlynssonar vegna NM U-15 karla í Finnlandi 3. ágúst 2025

Málsnúmer 2508081

27

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr 20.000 til Kolbrúnar Maríu Ármannsdóttur vegna EM U-20 kv í körfubolta í Litháen 3.-14. júlí 2025

ÍTG samþykkir ferðastyrk kr 20.000 til Kolbrúnar Maríu Ármannsdóttur vegna EM U-20 kv í körfubolta í Litháen 3.-14. júlí 2025

Málsnúmer 2508034

28

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr. 20.000 til Daníels Geirs Snorrasonar vegna EM U-16 í körfubolta í Makedonía 5-17 ágúst 2025.

ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Daníels Geirs Snorrasonar vegna EM U-16 í körfubolta í Makedonía 5-17 ágúst 2025.

Málsnúmer 2507288

29

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr. 20.000 til Kolbrúnar Evu Hólmarsdóttur vegna EYOF (Ólympíuleikar Evrópuæskunnar) í fimleikum í Osijek Króatíu 19. júlí 2025.

ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Kolbrúnar Evu Hólmarsdóttur vegna EYOF (Ólympíuleikar Evrópuæskunnar) í fimleikum í Osijek Króatíu 19. júlí 2025.

Önnur mál: Formaður upplýsti nefndarmenn um Virkniþing sem haldið verður í Miðgarði 26. ágúst nk. og hvatti nefndarmenn og aðra áhugasama Garðbæinga til að sækja þingið. Tilgangur Virkniþings er að kynna framboð á þeirri fjölbreyttu heilsueflandi þjónustu og afþreyingu sem stendur eldra fólki í Garðabæ til boða.
Garðabær, félög eldri borgara í Garðabæ og Álftanesi standa að Virkniþinginu.
Allar nánari upplýsingar um dagskrána má finna á vef Garðabæjar www.gardabaer.is.