Beint í efni

Kvöldakstur Strætó

Málsnúmer 2506010

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

41. fundur

Aukin ferðatíðni Strætó á leið 22 og 23 innan Garðabæjar

ÍTG fagnar lengingu á kvöldakstri Strætó á leiðum 22 og 23. innan Garðabæjar sem miðar að þörfum ungs fólks. Þetta hefur strax mikil áhrif á starfsemi íþróttafélaga og félagsmiðstöðva auk annarra sem bjóða þjónustu fyrir unglinga og ungmenni.

Bæjarráð Garðabæjar

02

21. (2169). fundur

Lagt fram minnisblað Strætó varðandi kvöldakstur leiða 22 og 23 í Garðabæ.
Bæjarráð samþykkir að hafinn verði kvöldakstur með hálftíma tíðni á leiðum 22 og 23 frá 1. september 2025. Stefnt skal að því að tími síðustu ferðar taki mið af útivistartíma barna og ungmenna eftir því sem því verður við komið.
Skal þjónustan vera til reynslu og endurmetin að ári liðnu. Samhliða verði möguleg tilhögun og útfærsla innanbæjaraksturs í Garðabæ metin og rýnd.

Fylgiskjöl