Beint í efni

Ungmennahús undirbúningsvinna

Málsnúmer 2008582

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

44. fundur

Skoðunarferð í Ungmennahúsið sem bíður formlegrar opnunar.

ÍTG fór í heimsókn í húsnæði Ungmennahúss sem nú er að verða tilbúið á Garðatorgi við hlið Gróskusalarins. Mikil ánægja er með hvernig til hefur tekist við að laga húsnæðið til. Fulltrúar Ungmennaráðs hafa lagt mikla vinnu í það verk ásamt starfsfólki. Reiknað er með að opna formlega á næstunni þegar lokið hefur verið öllum úttektum.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

02

43. fundur

Upplýsingar um stöðuna á Ungmennahúsi Garðabæjar.

Upplýst var um gang mála við stofnun Ungmennahúss á Garðatorgi í samstarfi við Ungmennaráð Garðabæjar. Stefnt er að opnunarhátíð um mánaðamótin október/nóvember.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

03

41. fundur

Ungmennahús Garðabæjar hefur starfsemi nú á haustmánuðum undir stjórn Ragnhildar Jónasdóttur í samvinnu við Ungmennaráð Garðabæjar. Höfuðstöðvar Ungmennahúss verða á Garðatorgi en starfsemi klúbba um hin ýmsu áhugamál fer fram þar sem aðstaða er til í Garðabæ.

Ragnhildur Jónasdóttir sem ráðin hefur verið verkefnisstjóri við opnun Ungmennahúss í Garðabæ kynnti stöðu verkefnisins.
Ungmennahús Garðabæjar fyrir 16 til 25 ára hefur starfsemi nú á haustmánuðum í samvinnu við Ungmennaráð Garðabæjar. Höfuðstöðvar Ungmennahúss verða á Garðatorgi við hlið Gróskusalarins en starfsemi klúbba um hin ýmsu áhugamál fer fram þar sem aðstaða er til í Garðabæ. Stefnt er að formlegri opnun 10. október nk.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

04

28. fundur

Áframhaldandi umræður um ungmennahús, hugmyndavinnu og þarfagreiningu í tengslum við það. Fyrir fundinum lá þarfagreining á húsnæði við Garðatorg 1 sem unnin var árið 2021 í samstarfi menningarfulltrúa, íþrótta- tómstunda- og forvarnafulltrúa, forstöðumanni Hönnunarsafns Íslands, fyrrum forvarnafulltrúa, aðila úr ungmennaráði og forstöðumönnum félagsmiðstöðva. Í þarfagreiningunni er fjallað m.a. um starfsemi ungmennahúss og möguleika þess í húsnæðinu.
Formaður ÍTG upplýsti ráðið um fund hans með formanni ungmennaráðs þar sem samstarf ráðanna að málinu og næstu skref voru rædd. Ungmennaráð fundaði um málið á fundi sínum 7. maí þar sem unnið var að hugmyndavinnu um starfsemi og staðsetningu ungmennahúss. ÍTG fór yfir hugmyndir ungmennaráðs og gagnlegar umræður fóru fram. Formanni ÍTG og íþrótta-, tómstunda- og forvarnafulltrúa var falið að halda áfram að vinna að framgangi verkefnisins í samstarfi við ungmennaráð.