43. fundur
43. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
15.10.2025
Kl. 08:00 - 09:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - formaður
- Harpa Rós Gísladóttir - aðalmaður
- Laufey Jóhannsdóttir - aðalmaður
- Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Arnar Hólm Einarsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi
- Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Kári Jónsson
Dagskrá
Málsnúmer 2505221
01
Vinnuskóli Garðabæjar sumarið 2025
Samantekt um Vinnuskóla Garðabæjar sumarið 2025.
Farið var yfir samantekt um Vinnuskóla Garðabæjar sumarið 2025.
Nýtt skráningar- og launakerfi (Vala) var tekið í notkun í samvinnu við Infomentor. Umsóknir opnuðu í mars, 696 skráningar bárust, 680 virkar.
40 starfsmenn í hópnum (flokkstjórar yfirflokkstjórar), kynjahlutfall jafnt.
Ferli frá febrúar til maí, flestir hófu störf um 10. júní.
Námskeið flokkstjóra í Skyndihjálp, öryggi, hópefli (KVAN), barnasáttmálinn, verkstjórn o.fl.
Starfsvettvangur var almenn garðvinna (stærsti hluti, 8. til 10. bekkur).
Aðstoð við leikskóla, félagasamtök og sumarnámskeið (t.d. Stjarnan, UMFÁ, Klifið, skátar, leikskólar). Sérverkefni fyrir félagsþjónustu (eldri borgarar og einkagarðar).
Mæting var mjög góð (um 80%), veður var hagstætt.
Helstu verkefni voru ruslahreinsun, illgresishreinsun, snyrting beða, tréklippingar og viðhald lóðar húsnæðis. Forvarnarverkefnið Egó lífsleikni og hópefli fyrir 8. bekk.
Málsnúmer 2504152
02
Sumarnámskeið barna 2025
Samantekt yfir sumarnámskeið fyrir börn í Garðabæ 2025 frá námskeiðshöldurum.
Farið var yfir samantekt sumarnámskeiða í Garðabæ á vegum félaga og einkaaðila. Markmið Garðabæjar var að tryggja fjölbreytt framboð á faglegri og skemmtilegri afþreyingu fyrir börn 6 til 9 ára yfir sumartímann, frá kl. 9 til 15 alla virka daga.
Hundruð barna tóku þátt í fjölbreyttum námskeiðum allt sumarið.
GKG: 574 börn á 7 námskeiðum stærsta einstaka námskeiðið.
Leikfélagið Draumar: 384 þátttakendur.
Klifið: 204 börn í myndlist og leiklist, 16 námskeið.
Stjarnan: 1.681 skráning á námskeið í fótbolta, körfu, fimleikum, sundi og handbolta.
Skátafélagið Vífill: 379 börn á smíða- og ævintýranámskeiðum.
Skátafélagið Svanir: 119 börn og um 19 starfsmenn.
Sumarhraun: 41 barn með fötlun/stuðningsþarfir, 24 starfsmenn.
Málsnúmer 2008582
03
Ungmennahús undirbúningsvinna
Upplýsingar um stöðuna á Ungmennahúsi Garðabæjar.
Upplýst var um gang mála við stofnun Ungmennahúss á Garðatorgi í samstarfi við Ungmennaráð Garðabæjar. Stefnt er að opnunarhátíð um mánaðamótin október/nóvember.
Málsnúmer 2510193
04
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur kr. 20.000 til Þórs Þórhallssonar vegna EM í Paraskotfimi á vegum ÍF 26. Sep - 8 Október 2025 í Osijek, Krótíu.
ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Þórs Þórhallssonar vegna EM í Paraskotfimi á vegum ÍF 26. Sep - 8 Október 2025 í Osijek, Krótíu.
Málsnúmer 2509560
05
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur kr,. 20.000 til Signýjar Láru Kristinsdóttur vegna HM í kraftlyftingum 27.08.25-14.09.25 á Costa Rica.
ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Signýjar Láru Kristinsdóttur vegna HM í kraftlyftingum 27.08.25-14.09.25 á Costa Rica.
Málsnúmer 2509537
06
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur kr. 20.000 til Hinriks Veigars Hinrikssonar vegna HM í kraftlyftingum unglinga 29. Ágúst á Kosta Ríka.
ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Hinriks Veigars Hinrikssonar vegna HM í kraftlyftingum unglinga 29. Ágúst á Kosta Ríka.
Málsnúmer 2509522
07
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur kr. 20.000 til Halldótur Írisar Ingvarsdóttur vegna STC 2025 í Keilu 27.03.2025-31.03.2025 Triple Crown í Englandi.
ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Halldótur Írisar Ingvarsdóttur vegna STC 2025 í Keilu 27.03.2025-31.03.2025 Triple Crown í Englandi.
Málsnúmer 2509521
08
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur kr. 20.000 til Halldóru Írisar Ingvarsdóttur vegna EM ESC 2025 í keilu 24.1-3.2.2025 í Leipzig þýskalandi.
ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Halldóru Írisar Ingvarsdóttur vegna EM ESC 2025 í keilu 24.1-3.2.2025 í Leipzig þýskalandi.
Málsnúmer 2509441
09
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur kr. 20.000 til Berglindar Kötlu Hlynsdóttur vegna EM U16 kvenna í körfubolta 20. ágúst í Istanbul.
Ferðastyrkur kr. 20.000 til Berglindar Kötlu Hlynsdóttur vegna EM U16 kvenna í körfubolta 20. ágúst í Istanbul.