Vinnuskóli Garðabæjar sumarið 2025
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
43. fundur
Samantekt um Vinnuskóla Garðabæjar sumarið 2025.
Farið var yfir samantekt um Vinnuskóla Garðabæjar sumarið 2025.
Nýtt skráningar- og launakerfi (Vala) var tekið í notkun í samvinnu við Infomentor. Umsóknir opnuðu í mars, 696 skráningar bárust, 680 virkar.
40 starfsmenn í hópnum (flokkstjórar yfirflokkstjórar), kynjahlutfall jafnt.
Ferli frá febrúar til maí, flestir hófu störf um 10. júní.
Námskeið flokkstjóra í Skyndihjálp, öryggi, hópefli (KVAN), barnasáttmálinn, verkstjórn o.fl.
Starfsvettvangur var almenn garðvinna (stærsti hluti, 8. til 10. bekkur).
Aðstoð við leikskóla, félagasamtök og sumarnámskeið (t.d. Stjarnan, UMFÁ, Klifið, skátar, leikskólar). Sérverkefni fyrir félagsþjónustu (eldri borgarar og einkagarðar).
Mæting var mjög góð (um 80%), veður var hagstætt.
Helstu verkefni voru ruslahreinsun, illgresishreinsun, snyrting beða, tréklippingar og viðhald lóðar húsnæðis. Forvarnarverkefnið Egó lífsleikni og hópefli fyrir 8. bekk.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
02
39. fundur
Kynning á stöðu skráninga í Vinnuskóla Garðabæjar sumarið 2025.
Gunnar Richardsson umsjónarmaður Vinnuskólans fór yfir umsóknir og skipulag sumarstarfsins 2025. 515 umsóknir eru komnar og enda líklegast í 6-700. Búast má við viðbótarskráningum þegar nær líður júní. Allir nemendur með lögheimili og eða í skólum í Garðabæ fái starf. Yfirflokkstjorar mæta til vinnu 20. maí og afgreiða óskir félaga og stilla upp í almenna hópa. Vinnan hefst 10. Júni hjá tveimur eldri árgöngunum 2009 og 2010 og 12. Júní hjá 2011.
Eldri eiga að getað unnið mest samtals 1705 tíma en 2011 geta unnið 99.5 tíma.