Beint í efni

39. fundur

14.05.2025
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

39. fundur

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

í Garðavör í Sveinatungu, Garðatorgi

14.05.2025

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - formaður
  • Harpa Rós Gísladóttir - aðalmaður
  • Laufey Jóhannsdóttir - aðalmaður
  • Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Arnar Hólm Einarsson - varamaður

Starfsmenn

  • Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi
  • Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi

Ritari

  • Kári Jónsson

Dagskrá

Málsnúmer 2505221

01

Vinnuskóli Garðabæjar sumarið 2025

Kynning á stöðu skráninga í Vinnuskóla Garðabæjar sumarið 2025.

Gunnar Richardsson umsjónarmaður Vinnuskólans fór yfir umsóknir og skipulag sumarstarfsins 2025. 515 umsóknir eru komnar og enda líklegast í 6-700. Búast má við viðbótarskráningum þegar nær líður júní. Allir nemendur með lögheimili og eða í skólum í Garðabæ fái starf. Yfirflokkstjorar mæta til vinnu 20. maí og afgreiða óskir félaga og stilla upp í almenna hópa. Vinnan hefst 10. Júni hjá tveimur eldri árgöngunum 2009 og 2010 og 12. Júní hjá 2011. 

Eldri eiga að getað unnið mest samtals 1705 tíma en 2011 geta unnið 99.5 tíma.

Málsnúmer 2505214

02

Viðhaldsverkefni útisvæða, göngu- og hjólastíga

Helstu viðhaldsverkefni Garðabæjar varðandi útileikvelli, leiktæki, þrektæki, hjóla- og göngustíga.

Farið var yfir minnisblað frá Umhverfissviði um helstu viðhaldsverkefni Garðabæjar varðandi útileikvelli, leiktæki, þrektæki, hjóla- og göngustíga.

Þar komu einnig fram hugmyndir að staðsetningu nýrra úti hreystivalla svo sem NV-Urriðaholts, við leiksvæðið Sandakri, á opnu svæði við Búðakinn, í Hæðahverfi, við Vífilsstaðavatn. Fundarmenn nefndu einnig Ásahverfi og við ylströndina í Sjálandshverfi.

Málsnúmer 2503352

03

Hönnun - Útboð - Endurnýjun Gervigras Álftanesvöllur

Niðurstaða útboðs í endurnýjun á gervigrasi knattspyrnuvallar á íþróttasvæðinu við Breiðumýri á Álftanesi, Álftanesvallar.

Niðurstaða bæjarráðs vegna útboðs í endurnýjun á gervigrasi knattspyrnuvallar á íþróttasvæðinu við Breiðumýri á Álftanesi, Álftanesvallar var kynnt:

Eftirfarandi tilboð bárust í útboðsverkið "Garðabær - Álftanesvöllurinn - Endurnýjun gervigras":

Altis ehf. (4 tilboð): kr. 88.845.006, kr. 98.364.630, kr. 103.403.116 og kr. 112.922.740.

Metatron ehf. (3 tilboð): kr. 102.269.600, kr. 112.079.600 og kr. 119.927.600.

Laiderz (danskt lagningarfyrirtæki - 2 tilboð): kr. 122.799.474 og kr. 134.014.266. Kostnaðaráætlun var kr. 116.595.000.

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum 6. maí 2025 að taka tilboði lægstbjóðanda Altis ehf. að fjárhæð kr. 88.845.006, 76% af kostnaðaráætlun.

Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins.

Málsnúmer 2504152

04

Sumarnámskeið barna 2025

15 félög hafa tilkynnt námskeið fyrir yngri börn í sumar. Slóðin á kynningar á vef bæjarins er: https://www.gardabaer.is/ibuar/ithrotta-og-tomstundastarf/sumarnamskeid/

Svanir á Álftanesi verða með dagskrá allan daginn í 9 vikur, til 8. ágúst.

Stjarnan verður með dagskrá íþróttaskóla og deilda allar vikurnar í sumar með hádegisgæslu.

15 félög hafa tilkynnt námskeið fyrir yngri börn í sumar. Slóðin á kynningar á vef bæjarins er: https://www.gardabaer.is/ibuar/ithrotta-og-tomstundastarf/sumarnamskeid/

Málsnúmer 2208200

05

Samningur við KSÍ um afnot að Miðgarði

Kynning á endurnýjun samnings við KSÍ um afnot af knattspyrnuaðstöðu í Miðgarði næstu 3 ár.

Endurnýjun samnings við KSÍ um afnot af knattspyrnuaðstöðu í Miðgarði næstu 3 ár var lögð fram til kynningar.

ÍTG leggur áherslu á ákvæði 6. greinar samningsins þar sem Garðabær gerir fyrirvara um að verði þörf á að sinna skólaíþróttum og íþróttafélögum bæjarins í húsinu getur komið til þess að endurskipuleggja þurfi notkun á mismunandi rýmum í samstarfi við forstöðumann Miðgarðs.

Málsnúmer 2504247

06

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr. 20.000 til Hákons Atla Bjarkasonar vegna keppni í borðtennis á Finnland Open 7. apríl 2025 á vegum ÍF.

ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Hákons Atla Bjarkasonar vegna keppni í borðtennis á Finnland Open 7. apríl 2025 á vegum ÍF.

Önnur mál:
a) Verið er að undirbúa sérstakt verkefni vegna félagslegrar einangrunar eldri borgara. Velferðarsvið hefur auglýst starf í sumar til þess að vinna að verkefninu í sumar. Umsóknarfrestur er til 15. maí 2025.
Þá hefur velferðarsvið verkefni til að sporna gegn félagslegri einangrun eldri borgara á dagskrá haustið 2025 eða vorið 2026.

b) Kynning á niðurstöðum úr síðustu fyrilögn íslensku Æskulýðsrannsóknarinnar fór fram í Sveinatungu klukkan 9:00-10:30.