Sumarnámskeið barna 2025
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
43. fundur
Samantekt yfir sumarnámskeið fyrir börn í Garðabæ 2025 frá námskeiðshöldurum.
Farið var yfir samantekt sumarnámskeiða í Garðabæ á vegum félaga og einkaaðila. Markmið Garðabæjar var að tryggja fjölbreytt framboð á faglegri og skemmtilegri afþreyingu fyrir börn 6 til 9 ára yfir sumartímann, frá kl. 9 til 15 alla virka daga.
Hundruð barna tóku þátt í fjölbreyttum námskeiðum allt sumarið.
GKG: 574 börn á 7 námskeiðum stærsta einstaka námskeiðið.
Leikfélagið Draumar: 384 þátttakendur.
Klifið: 204 börn í myndlist og leiklist, 16 námskeið.
Stjarnan: 1.681 skráning á námskeið í fótbolta, körfu, fimleikum, sundi og handbolta.
Skátafélagið Vífill: 379 börn á smíða- og ævintýranámskeiðum.
Skátafélagið Svanir: 119 börn og um 19 starfsmenn.
Sumarhraun: 41 barn með fötlun/stuðningsþarfir, 24 starfsmenn.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
02
39. fundur
15 félög hafa tilkynnt námskeið fyrir yngri börn í sumar. Slóðin á kynningar á vef bæjarins er: https://www.gardabaer.is/ibuar/ithrotta-og-tomstundastarf/sumarnamskeid/
Svanir á Álftanesi verða með dagskrá allan daginn í 9 vikur, til 8. ágúst.
Stjarnan verður með dagskrá íþróttaskóla og deilda allar vikurnar í sumar með hádegisgæslu.
15 félög hafa tilkynnt námskeið fyrir yngri börn í sumar. Slóðin á kynningar á vef bæjarins er: https://www.gardabaer.is/ibuar/ithrotta-og-tomstundastarf/sumarnamskeid/
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
03
38. fundur
Stefnt er að því að gefa út yfirlit yfir sumarnámskeið barna á vegum félaga og einkaaðila eftir sumardaginn fyrsta.
Félög hafa verið að senda inn sína dagskrá og hafa tíma fram til 10. apríl til að skila inn upplýsingum.
Stefnt er að því að gefa út yfirlit yfir sumarnámskeið barna á vegum félaga og einkaaðila eftir sumardaginn fyrsta. Félög hafa verið að senda inn sína dagskrá og hafa tíma fram til 10. apríl til að skila inn upplýsingum.
Lagt er upp með að hafa einhver tilboð allar vikur sumarsins þó skráingar verði litlar. Flest félög gera hlé á námskeiðum síðustu tvær vikur júlí.