Beint í efni

38. fundur

10.04.2025
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

38. fundur

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

í Garðabæ

10.04.2025

Kl. 08:00 - 09:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - formaður
  • Harpa Rós Gísladóttir - aðalmaður
  • Laufey Jóhannsdóttir - aðalmaður
  • Hlynur Elías Bæringsson - aðalmaður
  • Sigurður Sveinn Þórðarson - varamaður

Starfsmenn

  • Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi

Ritari

  • Kári Jónsson

Fundurinn var haldinn í golfskála Golfklúbbsins Odds á Urriðavelli í boði klúbbsins.

Dagskrá

Málsnúmer 2504152

01

Sumarnámskeið barna 2025

Stefnt er að því að gefa út yfirlit yfir sumarnámskeið barna á vegum félaga og einkaaðila eftir sumardaginn fyrsta.

Félög hafa verið að senda inn sína dagskrá og hafa tíma fram til 10. apríl til að skila inn upplýsingum.

Stefnt er að því að gefa út yfirlit yfir sumarnámskeið barna á vegum félaga og einkaaðila eftir sumardaginn fyrsta. Félög hafa verið að senda inn sína dagskrá og hafa tíma fram til 10. apríl til að skila inn upplýsingum.

Lagt er upp með að hafa einhver tilboð allar vikur sumarsins þó skráingar verði litlar. Flest félög gera hlé á námskeiðum síðustu tvær vikur júlí.

Málsnúmer 2504083

02

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr. 20.000 til Þórdísar Unnar Bjarkadóttur vegna EM U21 árs í bogfimi innandyra, Tyrklandi 15. febrúar 2025.

ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Þórdísar Unnar Bjarkadóttur vegna EM U21 árs í bogfimi innandyra, Tyrklandi 15. febrúar 2025.

Málsnúmer 2504151

03

Golfklúbburinn Oddur

Kynning á starfi GO fyrir meðlimum ÍTG.

Þorvaldur Þorsteinsson fráfarandi framkvæmdastjóri GO og Haraldur V. Haraldsson nýr framkvæmdastjóri GO fóru yfir starfið í Golfklúbbnum Oddi og helstu áskoranir varðandi æfingaaðstöðu, einkum í barna og unglingaþjálfun.

Áformum eru um stækkun vallarins upp í 27 brautir með möguleika á þremur 9 holu hringjum. Tillögum um þá útfærslu er að vænta á næstu mánuðum.