Viðhaldsverkefni útisvæða, göngu- og hjólastíga
Málsnúmer 2505214
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
39. fundur
Helstu viðhaldsverkefni Garðabæjar varðandi útileikvelli, leiktæki, þrektæki, hjóla- og göngustíga.
Farið var yfir minnisblað frá Umhverfissviði um helstu viðhaldsverkefni Garðabæjar varðandi útileikvelli, leiktæki, þrektæki, hjóla- og göngustíga.
Þar komu einnig fram hugmyndir að staðsetningu nýrra úti hreystivalla svo sem NV-Urriðaholts, við leiksvæðið Sandakri, á opnu svæði við Búðakinn, í Hæðahverfi, við Vífilsstaðavatn. Fundarmenn nefndu einnig Ásahverfi og við ylströndina í Sjálandshverfi.