Beint í efni

Framtíðar uppbygging íþróttaaðstöðu

Málsnúmer 2509254

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

42. fundur

Umræður um framtíðar þarfir uppbyggingar íþróttamannvirkja í Garðabæ.

ÍTG leggur til að fræðslu- og frístundasviði og formanni íþrótta- og tómstundaráðs verði falið að hefja vinnu við þarfagreiningu vegna áframhaldandi uppbyggingar á íþróttamannvirkjum í Miðgarði. Íþrótta- og tómstundaráð skal skila af sér tillögum til bæjarráðs í desember 2025.
Starf hópsins byggi á gildandi deiliskipulagi sem gerir ráð fyrir knattspyrnuleikvangi og nýju íþróttahúsi við hlið núverandi íþróttahúss.
Þarfagreining verði unnin í samstarfi við Fræðslu- og frístundasvið, sérstaklega m.t.t. þarfa skóla, frístundastarfs og annarra hagaðila, svo og íþrótta- og tómstundafélög bæjarins.

Forsendur: Talsverð uppbygging íbúðarhúsnæðis í Vetrarmýri og Hnoðraholti er hafin. Fólksfjölgun síðustu ára, einkum í Urriðaholti, Álftanesi og Ásahverfi. Vaxandi þörf skóla og félaga í bænum fyrir íþróttaaðstöðu til að mæta fólksfjölgun og móttöku stærri íþróttaviðburða.