Beint í efni

Forsetabikarinn 2024

Málsnúmer 2404361

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

28. fundur

Forsetabikarinn - hverfishátíð á Álftanesi 9. maí.
Skokkhópur UMFÁ heldur utan um Forsetahlaupið sem er viðburður á vegum UMFÍ. Hlaupin er ein 5km leið frá íþróttamiðstöðinni við Breiðumýri á Álftanesi út að Hliðsnesi og síðan að Bessastöðum og endað á byrjunarareitnum við íþróttamiðstöðina.
Samhliða þessu og fram á daginn eru ýmsir viðburðir á dagskrá.

Íþrótta-, tómstunda- og forvarnafulltrúi og formaður ÍTG kynntu dagskrá Forsetabikarsins á vegum UMFÁ sem haldin er á Álftanesi á uppstigningardag, 9. maí nk. Á meðal dagskrárþátta eru fótboltaleikir, tónleikar, hoppukastalar, leiktæki, hestateymingar, bílasýningar, dýragarður, matarvagnar og forsetahlaupið, en farið var yfir hlaupaleiðina á fundinum.
ÍTG fagnar metnaðarfullri og skemmtilegri dagskrá Forsetabikarsins árið 2024.