Beint í efni

Umsókn um styrk vegna keppnisferðar á Special Olympics Idrottfestival.

Málsnúmer 2404480

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

28. fundur

Íþróttaféalgið Ösp sækir um ferðastyrk fyrir eftirtalda einstaklinga vegna keppnisferðar á Special Olympics Idrottfestival, áður Nordic games í Frederikshavn í Danmörku dagana 23.-27.maí 2024.
Öspin er í forsvari fyrir hópnum sem ætlar út sem Team Iceland. Með á leikana fara í heildina 157 manns, af þeim eru 77 keppendur, 61 fylgdarmaður, 17 þjálfarar og 2 fararstjórar/aðstoðarþjálfarar.
Þetta er ferð á Special Olympics og eru keppendur fulltrúar Íslands á þessu móti en ferðin er m.a. í samstarfi við Special Olympics deild ÍF.
Þeir keppendur sem búa í Garðabæ og óskað er eftir styrk fyrir eru:
Embla Dögg Hannesdóttir - fótbolti
Ásmundur Þór Ásmundsson - frjálsar
Skúli Steinar Pétursson - frjálsar
Aníta Ósk Hrafnsdóttir - frjálsar
Styrkurinn óskast lagður inn á reikning sem var sérstaklega stofnaður fyrir Special Olympics Idrottfestival.

ÍTG samþykkir að veita Íþróttafélaginu Ösp styrk að upphæð 240.000,- vegna þátttöku fjögurra einstaklinga úr Garðabæ vegna keppnisferðar á Special Olympics Idrottfestival, áður Nordic games í Frederikshavn í Danmörku dagana 23.-27.maí 2024.
Þeir keppendur sem búa í Garðabæ og hljóta styrk eru:
Embla Dögg Hannesdóttir - fótbolti
Ásmundur Þór Ásmundsson - frjálsar
Skúli Steinar Pétursson - frjálsar
Aníta Ósk Hrafnsdóttir - frjálsar