Beint í efni

Bæjargil, endurskoðað deiliskipulag

Málsnúmer 2208310

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

12. (945). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

12. (945). fundur

"Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 29. ágúst 2024 að endurskoðuðu deiliskipulag fyrir Bæjargil. Í umsögn heilbrigðiseftirlits var lagt til að ákvæði yrði bætt við greinargerð þess efnis að óheimilt sé að hella spilliefnum í regnvatnslagnir til að stuðla að því að gæði vatns í Arnarneslæk verði ekki skert. Skipulagsnefnd lagði til að ákvæði þess efnis verði bætt í fyrsta kafla greinargerðar. Aðrir umsagnaraðilar gerðu ekki athugasemdir við tillöguna. Tillagan, með ofangreindri lagfæringu, verði samþykkt sem deiliskipulag Bæjargils í samræmi við 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Við gildistöku deiliskipulagsins fellur út gildi samþykkt deiliskipulag Bæjargils sem náði einnig til Gilsbúðar, samþykkt 1984."

Bæjarráð Garðabæjar

03

32. (2133). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 29. ágúst 2024 að endurskoðuðu deiliskipulag fyrir Bæjargil. Í umsögn heilbrigðiseftirlits var lagt til að ákvæði yrði bætt við greinargerð þess efnis að óheimilt sé að hella spilliefnum í regnvatnslagnir til að stuðla að því að gæði vatns í Arnarneslæk verði ekki skert. Skipulagsnefnd lagði til að ákvæði þess efnis verði bætt í fyrsta kafla greinargerðar. Aðrir umsagnaraðila gerðu ekki athugasemdir við tillöguna.
Tillagan, með ofangreindri lagfæringu, verði samþykkt sem deiliskipulag Bæjargils í samræmi við 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Við gildistöku deiliskipulagsins fellur út gildi samþykkt deiliskipulag Bæjargils sem náði einnig til Gilsbúðar, samþykkt 1984.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

10. fundur

Lögð fram tillaga að endurskoðuðu deiliskipulagi fyrir Bæjargil að lokinni auglýsingu ásamt umsögnum sem borist hafa.
Engar athugasemdir bárust. Í umsögn heilbrigðiseftirlits er lagt til að ákvæði verði bætt við greinargerð þess efnis að óheimilt sé að hella spilliefnum í regnvatnslagnir til að stuðla að því að gæði vatns í Arnarneslæk sé ekki skert. Nefndin leggur til að ákvæði þess efnis sé bætt við fyrsta kafla greinargerðar. Aðrir umsagnaraðilar gera engar athugasemdir við tillöguna.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með ofangreindri lagfæringu sem deiliskipulag Bæjargils í samræmi við 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Við gildistöku deiliskipulagsins fellur úr gildi samþykkt deiliskipulag Bæjargils sem náði einnig til til Gilsbúðar samþykkt 1984.

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

7. (940). fundur

"Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar frá fundi 24. apríl 2024, að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga deiliskipulag Bæjargils.

Tillagan var kynnt á íbúafundi sem haldinn var 11. mars 2024." (Mál nr. 2208310)

Bæjarráð Garðabæjar

06

16. (2117). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar frá fundi 24. apríl 2024, að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga deiliskipulag Bæjargils.

Tillagan var kynnt á íbúafundi sem haldinn var 11. mars 2024.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

5. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi íbúðarhverfis í Bæjargili að lokinni forkynningu ásamt umsögnum sem borist hafa.
Umsagnir hafa ekki gefið tilefni til breytingar á forkynntri tillögu.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

08

4. fundur

Lögð fram tillaga að endurskoðuðu deiliskipulagi Bæjargils að lokinni forkynningu. Umsagnir sem borist hafa lagðar fram.
Kynningarfundur var haldinn þann 11.mars og var hann vel sóttur.
Skipulagsnefnd vísar umsögnum til úrvinnslu.

Bæjarstjórn Garðabæjar

09

1. (934). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að deiliskipulagi fyrir Bæjargil. Tillagan skal kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt.
Tillagan skal kynnt samhliða tillögu að deiliskipulagi athafnasvæðis í Búðum (Iðnbúð, Smiðsbúð og Gilsbúð) og Hæðahverfis. (Mál nr. 2208310)

Bæjarráð Garðabæjar

10

2. (2103). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að deiliskipulagi fyrir Bæjargil. Tillagan skal kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt.
Tillagan skal kynnt samhliða tillögu að deiliskipulagi athafnasvæði í Búðum (Iðnbúð, Smiðsbúð og Gilsbúð) og Hæðahverfis.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

11

1. fundur

Lögð fram tillaga að endurskoðuðu deiliskipulagi sem nær til íbúðarbyggðar í Bæjargili.
Þar sem að deiliskipulagið var samþykkt árið 1984 þá telst það ekki í gildi þar sem að fyrsta staðfesta aðalskipulag Garðabæjar hafið þá ekki tekið gildi en það gerist árið 1987.
Samkvæmt tillögunni hefur athafnasvæði við Gilsbúð verið skilið frá deiliskipulagi Bæjargils og verður nú hluti af deiliskipulagi athafnasvæðis í Búðum (Iðnbúð, Smiðsbúð og Gilsbúð).
Tillagan gerir ekki ráð fyrir neinum grundvallar breytingum á því deiliskipulagi sem stuðst hefur verið við til þessa. Framsetning tillögunnar er með skýrari hætti og í samræmi við þær kröfur sem núgildandi skipulagslög gera ráð fyrir. Gert verður ráð fyrir þeim breytingum sem gerðar hafa verið á deiliskipulaginu og ná til einstakra lóða.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3.mgr.40.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Skal hún forkynnt samhliða tillögu að deiliskipulagi Bæjargils 2.áfanga (Hæðahverfis) og deiliskipulagi athafnasvæðis í Búðum.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

12

13. fundur

Einar Ingimarsson arkitekt gerði grein fyrir drögum að tillögu endurskoðaðs deiliskipulags Bæjargils. Tillaga nær ekki til atvinnulóða við Gilsbúð sem verður hluti af deiliskipulagi athafnasvæðis í Búðum. (Iðnbúð,Smiðsbúð,Gilsbúð)
Vísað til áframhaldandi úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafa og umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

13

8. fundur

Lögð fram tillaga skipulagsstjóra um að ráðist verði í gerð deiliskipulags fyrir íbúðarbyggð í Bæjargili en deiliskipulag 1.áfanga Bæjargils var samþykkt í bæjarstjórn árið 1984 og telst því ekki í gildi þar sem að fyrsta aðalskipulag Garðabæjar var ekki staðfest fyrr en árið 1987.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna og leggur til að gert verði ráð fyrir þeirri vinnu í þeirri fjárhagsáætlun sem nú er í mótun.