Beint í efni

Hæðir, endurskoðað deiliskipulag.

Málsnúmer 2311113

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

12. (945). fundur

"Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 29. ágúst 2024, að endurskoðuðu deiliskipulagi fyrir Hæðir. Engar athugasemdir bárust að lokinni auglýsingu. Í umsögn heilbrigðiseftirlits er lagt til að ákvæði verði bætt við greinargerð þess efnis að óheimilt sé að hella spilliefnum í regnvatnslagnir til að stuðla að því að gæði vatns í Arnarneslæk sé ekki skert. Skipulagsnefnd leggur til að ákvæði þess efnis sé bætt við fyrsta kafla greinargerðar. Aðrir umsagnaraðilar gerðu ekki athugasemdir við tillöguna. Tillagan, með ofangreindri lagfæringu verði samþykkt sem deiliskipulag Hæða í samræmi við 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Við gildistöku deiliskipulagsins fellur úr gildi samþykkt deiliskipulags Bæjargils 2. áfanga (Hæðahverfi) samþykkt 1989."

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

12. (945). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

03

32. (2133). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 29. ágúst 2024, að endurskoðuðu deiliskipulagi fyrir Hæðir. Engar athugasemdir bárust að lokinni auglýsingu. Í umsögn heilbrigðiseftirlits er lagt til að ákvæði verði bætt við greinargerð þess efnis að óheimilt sé að hella spilliefnum í regnvatnslagnir til að stuðla að því að gæði vatns í Arnarneslæk sé ekki skert. Skipulagsnefnd leggur til að ákvæði þess efnis sé bætt við fyrsta kafla greinargerðar. Aðrir umsagnaraðilar gerðu ekki athugasemdir við tillöguna.
Tillagan, með ofangreindri lagfæringu verði samþykkt sem deiliskipulag Hæða í samræmi við 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Við gildistöku deiliskipulagsins fellur úr gildi samþykkt deiliskipulags Bæjargils 2. áfanga (Hæðahverfi) samþykkt 1989.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

10. fundur

Lögð fram tillaga að endurskoðuðu deiliskipulagi fyrir Hæðir að lokinni auglýsingu ásamt umsögnum sem borist hafa.
Engar athugasemdir bárust. Í umsögn heilbrigðiseftirlits er lagt til að ákvæði verði bætt við greinargerð þess efnis að óheimilt sé að hella spilliefnum í regnvatnslagnir til að stuðla að því að gæði vatns í Arnarneslæk sé ekki skert. Nefndin leggur til að ákvæði þess efnis sé bætt við fyrsta kafla greinargerðar. Aðrir umsagnaraðilar gera engar athugasemdir við tillöguna.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með ofangreindri lagfæringu sem deiliskipulag Hæða í samræmi við 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Við gildistöku deiliskipulagsins fellur úr gildi samþykkt deiliskipulag Bæjargils 2.áfanga (Hæðahverfi) samþykkt 1989.

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

7. (940). fundur

"Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar frá fundi 24. apríl 2024, að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga deiliskipulag Hæðahverfis.

Tillagan var kynnt á íbúafundi sem haldinn var 11. mars 2024.

Gerð hefur verið sú breyting frá forkynntri tillögu að raðhúsalóðin Blómahæð 7 stækkar að göngustíg.

Lagt er til að í grein 3.1. í greinargerð verði bætt við eftirfarandi setningu:
"Á lóðinni er gert ráð fyrir leikskóla. Fjöldi barna eða deilda takmarkast við það byggingarmagn og fjölda bílastæða sem heimiluð eru á lóðinni." í grein 3.1. í greinargerð verði bætt við eftirfarandi setningu: „Á lóðinni er gert ráð fyrir leikskóla. Fjöldi barna eða deilda takmarkast við það byggingarmagn og fjölda bílastæða sem heimiluð eru á lóðinni." (Mál nr. 2311113)

Bæjarráð Garðabæjar

06

16. (2117). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar frá fundi 24. apríl 2024, að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga deiliskipulag Hæðahverfis.

Tillagan var kynnt á íbúafundi sem haldinn var 11. mars 2024.

Gerð hefur verið sú breyting frá forkynntri tillögu að raðhúslóðin Blómahæð 7 stækkar að göngustíg.

Lagt er til að í grein 3.1. í greinargerð verði bætt við eftirfarandi setningu:
"Á lóðinni er gert ráð fyrir leikskóla. Fjöldi barna eða deilda takmarkast við það byggingarmagn og fjölda bílastæða sem heimiluð eru á lóðinni." í grein 3.1. í greinargerð verði bætt eftirfarandi setningu: „Á lóðinni er gert ráð fyrir leikskóla. Fjöldi barna eða deilda takmarkast við það byggingarmagn og fjölda bílastæða sem heimiluð eru á lóðinni."

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

5. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Hæðahverfis að lokinni forkynningu ásamt umsögnum og athugsemdum sem borist hafa.
Tillögunni er ætlað að leysa af deiliskipulags Bæjargils II áfangi sem nú er í gildi.
Gerð hefur verið sú breyting frá forkynntri tillögu að raðhúslóðin Blómahæð 7 stækkar að göngustíg.
Skipulagsnefnd leggur til að í grein 3.1. í greinargerð verði bætt við eftirfarandi setningu: "Á lóðinni er gert ráð fyrir leikskóla. Fjöldi barna eða deilda takmarkast við það byggingarmagn og fjölda bílastæða sem heimiluð eru á lóðinni."
Skipulagsnefnd vísar tillögunni með ofangreindri breytingu til auglýsingar í samræmi við 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

08

4. fundur

Lögð fram tillaga að endurskoðuðu deiliskipulagi Hæðahverfis (Bæjargil II.áfangi) að lokinni forkynningu.
Kynningarfundur var haldinn þann 11.mars og var hann vel sóttur.
Umsagnir og ábendingar sem borist hafa lagðar fram.
Skipulagsnefnd vísar umsögnum til úrvinnslu.

Bæjarstjórn Garðabæjar

09

1. (934). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að deiliskipulagi fyrir Hæðahverfi. Tillagan skal kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt.
Tillagan skal kynnt samhliða tillögu að deiliskipulagi athafnasvæðis í Búðum (Iðnbúð, Smiðsbúð og Gilsbúð) og Bæjargili. (Mál nr. 2311113)

Bæjarráð Garðabæjar

10

2. (2103). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að deiliskipulagi fyrir Hæðahverfi. Tillagan skal kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt.
Tillagan skal kynnt samhliða tillögu að deiliskipulagi athafnasvæði í Búðum (Iðnbúð, Smiðsbúð og Gilsbúð) og Bæjargili.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

11

1. fundur

Lögð fram tillaga að endurskoðuðu deiliskipulagi sem nær til íbúðarbyggðar í Hæðarhverfi. Tillögunni er ætlað að leysa af það deiliskipulag sem nú er í gildi og nefnist Bæjargil 2.áfangi.
Tillagan gerir ekki ráð fyrir neinum grundvallar breytingum á gildandi deiliskipulagi sem stuðst hefur verið við til þessa. Framsetning tillögunnar er með skýrari hætti og í samræmi við þær kröfur sem núgildandi skipulagslög gera ráð fyrir. Gert verður ráð fyrir þeim breytingum sem gerðar hafa verið á deiliskipulaginu og ná til einstakra lóða.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3.mgr.40.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Skal hún forkynnt samhliða tillögu að deiliskipulagi Bæjargils og deiliskipulagi athafnasvæðis í Búðum.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

12

13. fundur

Einar Ingimarsson arkitekt gerði grein fyrir drögum að tillögu endurskoðaðs deiliskipulags Bæjargils 2.áfanga (Hæðahverfi).
Vísað til áframhaldandi úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafa og umhverfissviði.