Búðir, athafnasvæði, endurskoðað deiliskipulag.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
12. (945). fundur
"Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 29. ágúst 2024 að endurskoðuðu deiliskipulagi í Búðum (Iðnbúð/Smiðsbúð/Gilsbúð). Í umsögn heilbrigðiseftirlits var bent á að vísað sé í samþykkt Garðabæjar um skilti sem liggi ekki fyrir. Skipulagsnefnd leggur til að texti greinargerðar um skilti verði lagfærður hvað þetta atriði varðar. Aðrir umsagnaraðilar gerðu ekki athugasemdir við tillöguna. Tillagan, með ofangreindri lagfæringu, verði samþykkt sem deiliskipulag athafnahverfis í Búðum í samræmi við 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Við gildistöku deiliskipulagsins fellur úr gildi deiliskipulag fyrir iðnaðar- og verslunarlóðir í Búðahverfi (Iðnbúð, Smiðsbúð), samþykkt 1977 og endurskoðað 2004. Einnig fellur út gildi samþykkt deiliskipulag Bæjargils sem náði til Gilsbúðar, samþykkt 1984."
Bæjarráð Garðabæjar
03
32. (2133). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 29. ágúst 2024 að endurskoðuðu deiliskipulagi í Búðum (Iðnbúð/Smiðsbúð/Gilsbúð). Í umsögn heilbrigðiseftirlits var bent á að vísað sé í samþykkt Garðabæjar um skilti sem liggi ekki fyrir. Skipulagsnefnd leggur til að texti greinargerðar um skilti verði lagfærður hvað þetta atriði varðar. Aðrir umsagnaraðilar gerðu ekki athugasemdir við tillöguna.
Tillagan, með ofangreindri lagfæringu, verði samþykkt sem deiliskipulag Athafnahverfis í Búðum í samræmi við 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Við gildistöku deiliskipulagsins fellur úr gildi deiliskipulag fyrir iðnaðar- og verslunarlóðir í Búðahverfi (Iðnbúð, Smiðsbúð), samþykkt 1977 og endurskoðað 2004. Einnig fellur út gildi samþykkt deiliskipulag Bæjargils sem náði til Gilsbúðar, samþykkt 1984.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
10. fundur
Lögð fram tillaga að endurskoðuðu deiliskipulagi fyrir athafnasvæði í Búðum (Iðnbúð/Smiðsbúð/Gilsbúð) að lokinni auglýsingu ásamt umsögnum sem borist hafa.
Engar athugasemdir bárust. Í umsögn heilbrigðiseftirlits er bent á að vísað sé í samþykkt Garðabæjar um skilti sem liggi ekki fyrir. Nefndi leggur til að texti greinargerðar um skilti verði lagfærður hvað þetta atriði varðar. Aðrir umsagnaraðilar gera engar athugasemdir við tillöguna.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með ofangreindri lagfæringu sem deiliskipulag Athafnahverfis í Búðum í samræmi við 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Við gildistöku deiliskipulagsins fellur úr gildi deiliskipulag fyrir iðnaðar-og verslunarlóðir í Búðahverfi (Iðnbúð,Smiðsbúð), samykkt 1977 og endurskoðað 2004. Einnig fellur úr gildi samþykkt deiliskipulag Bæjargils sem náði til Gilsbúðar samþykkt 1984.
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
7. (940). fundur
"Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar frá fundi 24. apríl 2024, að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga deiliskipulag athafnahverfis í búðum.
Tillagan var kynnt á íbúafundi sem haldinn var 11. mars 2024.
Ákvæði er varðar skilti hefur verið breytt lítillega vegna umsagnar Heilbrigðiseftirlits." (Mál nr. 2208311)
Bæjarráð Garðabæjar
06
16. (2117). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar frá fundi 24. apríl 2024, að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga deiliskipulag athafnahverfis í búðum.
Tillagan var kynnt á íbúafundi sem haldinn var 11. mars 2024.
Ákvæði er varðar skilti hefur verið breytt lítillega vegna umsagnar Heilbrigðiseftirlits.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
5. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi athafnahverfis í Búðum að lokinni forkynningu ásamt umsögnum sem borist hafa.
Umfjöllun um skilti hefur verið breytt lítillega vegna umsagnar Heilbrigðiseftirlits.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
4. fundur
Lögð fram tillaga að endurskoðuðu deiliskipulagi athafnahverfis í Búðum (Iðnbúð/Smiðsbúð/Gilsbúð) að lokinni forkynningu. Umsagnir sem borist hafa lagðar fram.
Kynningarfundur var haldinn þann 11.mars og var hann vel sóttur.
Skipulagsnefnd vísar umsögnum til úrvinnslu.
Bæjarstjórn Garðabæjar
09
1. (934). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að deiliskipulagi fyrir athafnasvæði í Búðum (Iðnbúð, Smiðsbúð og Gilsbúð). Tillagan skal kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt.
Tillagan skal kynnt samhliða tillögu að deiliskipulagi Bæjargils og Hæðahverfis. (Mál nr. 2208311)
Bæjarráð Garðabæjar
10
2. (2103). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að deiliskipulagi fyrir athafnasvæði í Búðum (Iðnbúð, Smiðsbúð og Gilsbúð). Tillagan skal kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt.
Tillagan skal kynnt samhliða tillögu að deiliskipulagi Bæjargils og Hæðahverfis.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
11
1. fundur
Skipulagsstjóri gerði grein fyrir tillögu að endurskoðuðu deiliskipulagi fyrir athafnasvæði í Búðum sem nær til Iðnbúðar, Smiðsbúðar og Gilsbúðar.
Deiliskipulaginu er ætlað að uppfæra þær áætlanir sem hafa verið grundvöllur uppbyggingar og þróunar svæðisins til þessa.
Helstu breytingar eru þær að deiliskipulagið nær nú einnig til Gilsbúðar sem fram til þessa hefur verið hluti af deiliskipulagi Bæjargils.
Hámarksnýtingarhlutfall breytist úr 0,4 í 0,5 til samræmis við ýmsar breytingar sem hafa verið gerðar á einstaka lóðum frá því að deiliskipulagið tók gildi. Ákvæði um fjölda bílastæða miðast nú við þá nýtingu sem áætluð er á viðkomandi lóð.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3.mgr.40.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Skal hún forkynnt samhliða tillögu að deiliskipulagi Bæjargils 1.áfanga og Bæjargils 2.áfanga (Hæðahverfis)
Skipulagsnefnd Garðabæjar
12
8. fundur
Lögð fram tillaga skipulagsstjóra um að ráðist verði í endurskoðun deiliskipulags Iðnbúðar-og Smiðsbúðar sem hefði það m.a. að markmiði að fella atvinnulóðir við Gilsbúð inn í það deiliskipulag.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna og leggur til að gert verði ráð fyrir þeirri vinnu í þeirri fjárhagsáætlun sem nú er í mótun.