Endurskoðun reglna um félagslegt leiguhúsnæði Garðabæjar.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
25. (2173). fundur
Snædís Björnsdóttir lögfræðingur á velferðarsviði kynnti endurskoðaðar reglur Garðabæjar um félagslegt leiguhúsnæði.
Bæjarráð samþykkir samhljóða reglur um félagslegt leiguhúsnæði Garðabæjar.
Velferðarráð Garðabæjar
02
6. fundur
Drög að breytingum á reglum um félagslegt húsnæði og nýrra matsviðmiða vegna umsóknar um almennt félagslegt leiguhúsnæði, umsóknar um milliflutning og vegna endurnýjunar húsaleigusamninga í félagslegu húsnæði lögð fram.
Velferðarráð gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi drög að endurskoðuðum reglum og matsviðmiðum um félagslegt leiguhúsnæði og vísar reglunum til bæjarráðs til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
12. (871). fundur
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða reglur um félagslegt leiguhúsnæði Garðabæjar.
Bæjarráð Garðabæjar
04
34. (1942). fundur
Bæjarráð vísar endurskoðun reglna um félagslegt leiguhúsnæði til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fjölskylduráð Garðabæjar
05
7. fundur
Tekið er fyrir mál nr. 2005438 endurskoðun reglna um félagslegt leiguhúsnæði Garðabæjar. Fyrirliggjandi drög að endurskoðuðum reglum um félagslegt leiguhúsnæði ásamt stigagjöf rædd. Fjölskylduráð samþykkir fyrir sitt leyti fyrirliggjandi drög að reglum og stigagjöf og vísar drögunum til afgreiðslu bæjarráðs Garðabæjar.
Fjölskylduráð Garðabæjar
06
6. fundur
Tekið er fyrir mál nr. 2005438 drög að endurskoðuðum reglum um félagslegt leiguhúsnæði Garðabæjar.
Lögð eru fram drög að endurskoðuðum reglum og stigagjöf.
Fjölskylduráð fjallar um drögin og gerir athugasemdir.
Samþykkt er að senda drögin til yfirlestrar lögmanns bæjarins og leggja málið aftur fyrir fjölskylduráð í ágúst.
Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks
07
2. fundur
Tekið er fyrir mál nr. 2005438 drög að endurskoðuðum reglum um félagslegt leiguhúsnæði í Garðabæ. Snædís Björnsdóttir, verkefnisstjóri, situr fundinn undir þessum dagskrárlið. Snædís kynnir drög að endurskoðuðum reglum sem nú eru í vinnslu og kallar eftir athugasemdum.Fyrirliggjandi drög og stigagjöf eru rædd. Kallað er eftir ábendingum og athugasemdum.