Beint í efni

25. (2173). fundur

08.07.2025
Bæjarráð Garðabæjar

25. (2173). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

08.07.2025

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Margrét Bjarnadóttir - varamaður
  • Gunnar Valur Gíslason - varamaður
  • Ingvar Arnarson - varamaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
  • Guðlaugur Kristmundsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
  • Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri

Ritari

  • Lúðvík Örn Steinarsson

Dagskrá

Málsnúmer 2505453

01

Lindarflöt 26 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sigríði Bryndísi Stefánsdóttur, kt. 120673-3949, leyfi til að breyta þaki og til að breyta útveggjaklæðningu að Lindarflöt 26.

Málsnúmer 2504279

02

Markarflöt 41 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Teiti Páli Reynissyni, kt. 240588-2699 leyfi fyrir viðbyggingu að Markarflöt 41.

Málsnúmer 2503299

03

Þorraholt 7 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita ÞG Hnoðraholti ehf., kt. 66024-0470, leyfi fyrir byggingu fjölbýlishúss með 92 íbúðum að Þorraholti 7.

Málsnúmer 2507025

04

Veitumál í Garðabæ - Kynning

Sviðsstjóri umhverfissviðs kynnti stöðu veitumála í Garðabæ. Gerð var grein fyrir Vatnsveitu Garðabæjar og vatnsvinnslu allra sveitarfélaga úr Heiðmörk ásamt framleiðslugetu miðað við framtíðarspá. Þá var farið yfir stöðu hitaveitu og eftirspurnarspá hitaveitu ásamt verkefnum framundan. Loks var gerð grein fyrir stöðu fráveitumála í Garðabæ, uppbyggingaráforma á Álftanesi og stöðu Skerjafjarðarveitna.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2506657

05

Opnun tilboða í verkið, Reglubundið eftirlit og viðhald loftræsikerfa.

Afgreiðslu málsins frestað.

Málsnúmer 2005438

06

Endurskoðun reglna um félagslegt leiguhúsnæði Garðabæjar.

Snædís Björnsdóttir lögfræðingur á velferðarsviði kynnti endurskoðaðar reglur Garðabæjar um félagslegt leiguhúsnæði.

Bæjarráð samþykkir samhljóða reglur um félagslegt leiguhúsnæði Garðabæjar.

Málsnúmer 2506673

07

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar Infront ehf. um leyfi til reksturs í Miðhrauni 24.

Lögð fram beiðni Infront ehf., kt. 460320-1000, vegna umsóknar um leyfi til reksturs - veitingaleyfi í flokki II - C veitingastofa og greiðasala, að Miðhrauni 24.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.

Málsnúmer 2507065

08

Tilkynning frá innviðaráðuneytinu varðandi fræðslu um hinsegin málefni fyrir kjörna fulltrúa og starfsfólk sveitarfélaga, dags. 4. júlí 2025.

Lagt fram.

Málsnúmer 2502221

09

Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 13/6 ´25.

Lagt fram.

Málsnúmer 2501492

10

Fundargerð svæðisskipulagsnefndar frá 13/6 ´25.

Lagt fram.