Beint í efni

Opnun tilboða í verkið, Reglubundið eftirlit og viðhald loftræstikerfa.

Málsnúmer 2506657

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

27. (2175). fundur

Eftirfarandi tilboð bárust í útboðsverkið "Reglubundið eftirlit og viðhald loftræstikerfa fyrir Garðabæ":

1. Hitastýring hf., kr. 42.885.990.

2. Blikkás ehf., kr. 72.542.028.

3. Rafstjórn ehf., kr. 20.859.049.

Kostnaðaráætlun var kr. 33.000.000.

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Rafstjórnar ehf. að fjárhæð kr. 20.859.049. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Lagt fram minnisblað Líf bygginga vegna yfirferðar tilboðsgagna bjóðenda.

Bæjarráð Garðabæjar

02

25. (2173). fundur

Afgreiðslu málsins frestað.