27. (2175). fundur
27. (2175). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
29.07.2025
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Margrét Bjarnadóttir - varamaður
- Gunnar Valur Gíslason - varamaður
- Guðfinnur Sigurvinsson - varamaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
- Rakel Steinberg Sölvadóttir - varaáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Dagskrá
Málsnúmer 2502225
01
Sunnuflöt 4 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Trausta Þórmundssyni, kt. 100571-4129, leyfi til lítilsháttar breytinga á útliti og innra rými, auk stækkunar á húsi að Sunnuflöt 34.
Málsnúmer 2504323
02
Suðurhraun 2a - Umsókn um byggingarleyfi - rými 01-01.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Vélveri ehf., kt. 690269-4149, leyfi fyrir viðbyggingu við rými 0102 að Suðurhrauni 2a.
Málsnúmer 2504323
03
Suðurhraun 2a - Umsókn um byggingarleyfi - rými 01-02.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Straumvirki ehf., kt. 650190-1819, leyfi fyrir viðbyggingu við rými 0101, að Suðurhrauni 2a.
Málsnúmer 2504218
04
Kjarrprýði 3 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Víði Starra Vilbergssyni, kt. 010278-5549, leyfi til að byggja einbýlishús að Kjarrprýði 3.
Málsnúmer 2411317
05
Betri Garðabær - Bættur stígur og pallar - Vífilsstaðahraun.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsstjóra frá afgreiðslufundi 25. júlí 2025 fyrir veitingu framkvæmdaleyfis fyrir gerð fjögurra votlendispalla sem brúa skulu dældir í Vífilsstaðahrauni á útivistarstíg (Selstíg) ásamt framkvæmdaleyfi fyrir lagningu Gunnhildarvörðustígs frá bílastæði við Vífilsstaðalæk að Gunnhildarvörðu á Vífilsstaðahlíð, en stígurinn er í samræmi við deiliskipulag Heiðmerkur og Sandahlíðar. Samþykktin er með fyrirvara um jákvæða umsögn Náttúruverndarstofnunar en Selstígur er innan fólkvangs í Garðahrauni efra, Garðahrauni neðra, Vífilsstaðahrauni og Maríuhellum og Gunnhildarvörðustígur er að mestu innan friðlands Vífilsstaðavatns.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar, 2.gr.h, nr.1182/2022.
Málsnúmer 2507428
06
Ásgarður, dsk. breyting, lýsing æfingavallar.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsstjóra frá afgreiðslufyndi 25. júlí 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Ásgarðs sem gerir ráð fyrir fjórum ljósamöstrum við æfingavöll norðan aðalvallar. Hámarkshæð ljósamastranna er 21,5 metrar og heimilað birtumagn verður 180-300 lux. (til samanburðar eru ljós á aðalvelli 800 lux). Til að tryggja að lýsing trufli ekki íbúðarbyggð í nágrenni við völlinn skulu lampar vera með stefnuvirkri lýsingu með skermingu samskonar og núverandi lýsing aðalvallar.
Skipulagsstjóri mat breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Ásgarðs í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum við Stekkjarflöt.
Málsnúmer 2505268
07
Opnun tilboða í verkið, Miðgarður innanhúsfrágangur, áfangi 2.
Eftirfarandi tilboð bárust í útboðsverkið "Miðgarður. Innanhússfrágangur áfangi 2":
1. Tindhagur ehf., kr. 277.477.650.
2. Húsameistari ehf., kr. 204.944.739.
3. E. Sigurðsson ehf., kr. 251.312.994.
4. Skagaver ehf. kr. 229.561.029.
5. Borg byggingalausnir ehf., kr. 193.328.334.
Kostnaðaráætlun var kr. 210.000.000.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Borg byggingalausna ehf., að fjárhæð kr. 193.328.334. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Málsnúmer 2506657
08
Opnun tilboða í verkið, Reglubundið eftirlit og viðhald loftræstikerfa.
Eftirfarandi tilboð bárust í útboðsverkið "Reglubundið eftirlit og viðhald loftræstikerfa fyrir Garðabæ":
1. Hitastýring hf., kr. 42.885.990.
2. Blikkás ehf., kr. 72.542.028.
3. Rafstjórn ehf., kr. 20.859.049.
Kostnaðaráætlun var kr. 33.000.000.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Rafstjórnar ehf. að fjárhæð kr. 20.859.049. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Lagt fram minnisblað Líf bygginga vegna yfirferðar tilboðsgagna bjóðenda.
Málsnúmer 2507283
09
Erindi Stjörnunnar um nafn styrktaraðila á Ásgarð, keppnishöll körfuknattleiksdeildar, dags. 17. júlí 2025.
Í bréfinu kemur fram beiðni um að nefna íþróttahúsið við Ásgarð, heiti verktakafyrirtækisins ÞG-verks ehf. sem er styrktaraðili körfuknattleiksdeildar UMF Stjörnunnar. Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur bæjarstjóra útfærslu málsins í samráði við fulltrúa UMF Stjörnunnar.
Málsnúmer 2506673
10
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar Infront ehf. um leyfi til reksturs í Miðhrauni 24.
Lögð fram beiðni Infront ehf., kt. 460320-1000, vegna umsóknar um leyfi til reksturs - veitingaleyfi í flokki II - C veitingastofa og greiðasala, að Miðhrauni 24. Breyting á gestafjölda frá fyrri umsókn er 50 í stað 55.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
Málsnúmer 2507256
11
Uppfært minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga um uppfærðar forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga 2025 og 2026-2028.
Lagt fram minnisblað greiningarteymis þróunarsviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga um uppfærðar forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga 2025 og 2026-2028.
Málsnúmer 2412068
12
Minnisblað Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) um breytingar á stofnskjölum almenningssamgangna ohf., dags. 16. júlí 2025.
Lagt fram minnisblað Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu vegna breytingar á stofnskjölum Almenningssamgangna ohf.
Bæjarráð vísar erindinu til skoðunar hjá sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Málsnúmer 2504457
13
Fundargerð eigendafundar Strætó bs., 53. fundur, dags. 27. júní 2025.
Lögð fram.
Málsnúmer 2501149
14
Fundargerð stjórnar SSH, 610. fundur, dags. 7. júlí 2025.
Lögð fram.