Beint í efni

Betri Garðabær - Bættur stígur og pallar - Vífilsstaðahraun

Málsnúmer 2411317

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

14. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

11. fundur

Bæjarráð Garðabæjar

03

27. (2175). fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsstjóra frá afgreiðslufundi 25. júlí 2025 fyrir veitingu framkvæmdaleyfis fyrir gerð fjögurra votlendispalla sem brúa skulu dældir í Vífilsstaðahrauni á útivistarstíg (Selstíg) ásamt framkvæmdaleyfi fyrir lagningu Gunnhildarvörðustígs frá bílastæði við Vífilsstaðalæk að Gunnhildarvörðu á Vífilsstaðahlíð, en stígurinn er í samræmi við deiliskipulag Heiðmerkur og Sandahlíðar. Samþykktin er með fyrirvara um jákvæða umsögn Náttúruverndarstofnunar en Selstígur er innan fólkvangs í Garðahrauni efra, Garðahrauni neðra, Vífilsstaðahrauni og Maríuhellum og Gunnhildarvörðustígur er að mestu innan friðlands Vífilsstaðavatns.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar, 2.gr.h, nr.1182/2022.

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra

04

10. fundur

Lögð fram umsókn Umhverfissviðs Garðabæjar um framkvæmdaleyfi fyrir gerð fjögurra votlendispalla sem brúa skulu dældir í Vífilsstaðahrauni á útivistarstíg (Selstíg). Einnig er sótt um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu Gunnhildarvörðustígs frá bílastæði við Vífilsstaðalæk að Gunnhildarvörðu á Vífilsstaðahlíð.
Votlendispallar eru samkvæmt framlögðum gögnum í samræmi við deiliskiplags Vífilsstaðahrauns. Stígurinn er í samræmi við deiliskipulags Heiðmerkur og Sandahlíðar.
Skipulagsstjóri samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis með fyrirvara um jákvæða umsögn Náttúruverndarstofnunar en Selstígur er innan fólkvangs í Garðahrauni efra, Garðahrauni neðra, Vífilsstaðahrauni og Maríuhellum og Gunnhildarvörðustígur er að mestu innan friðlands Vífilsstaðavatns.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar, 2.gr.h, nr.1182/2022.