Miðgarður - skoðunarferð.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
4. (2199). fundur
Bæjarráð heimsótti Miðgarð og kynnti sér aðstöðu í húsnæðinu og stöðu byggingaframkvæmda á 2. hæð Miðgarðs.
Bæjarráð Garðabæjar
02
27. (2175). fundur
Eftirfarandi tilboð bárust í útboðsverkið "Miðgarður. Innanhússfrágangur áfangi 2":
1. Tindhagur ehf., kr. 277.477.650.
2. Húsameistari ehf., kr. 204.944.739.
3. E. Sigurðsson ehf., kr. 251.312.994.
4. Skagaver ehf. kr. 229.561.029.
5. Borg byggingalausnir ehf., kr. 193.328.334.
Kostnaðaráætlun var kr. 210.000.000.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Borg byggingalausna ehf., að fjárhæð kr. 193.328.334. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Bæjarráð Garðabæjar
03
19. (2167). fundur
Bæjarráð samþykkir að boðnar verði út innréttingar 2. hæð-vestur í Miðgarði samkvæmt fyrirliggjandi gögnum. Bæjarráð felur umhverfissviði framkvæmd útboðsins.