Beint í efni

Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi breytingar á stofnskjölum Almenningssamgangna ohf., dags. 8. ágúst 2025.

Málsnúmer 2412068

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

28. (2176). fundur

Lagt fram erindi Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, dags. 8. ágúst 2025 varðandi stofnun félags til reksturs almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu.
Þann 1. apríl 2025 samþykkti bæjarstjórn Garðabæjar stofnskjöl félagsins. Frá framangreindu tímamarki hefur verið unnið að stofnun félags í eigu ríkis og sveitarfélaga sem annast mun þróun, rekstur og skipulag almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Við þá vinnu hefur m.a. verið leitað lögfræðiálita. Í ljósi fyrirliggjandi gagna telur stýrihópur um verkefnið nauðsynlegt að gera smávægilegar breytingar á stofnskjölum félagsins.
Bæjarráð samþykkir þær breytingar sem fram koma í erindi SSH og veitir bæjarstjóra umboð fyrir hönd Garðabæjar að undirrita og samþykkja stofnsamning, samþykktir og hluthafasamkomulag Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins ohf., félags um rekstur almenningssamgangna.

Bæjarráð Garðabæjar

02

27. (2175). fundur

Lagt fram minnisblað Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu vegna breytingar á stofnskjölum Almenningssamgangna ohf.
Bæjarráð vísar erindinu til skoðunar hjá sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

6. (958). fundur

Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls.
Björg Fenger tók til máls.

Bæjarstjórn samþykkir fyrir hönd Garðabæjar stofnsamning, samþykktir og hluthafasamkomulag Almenningssamgangna ohf., félags um rekstur almenningssamgangna.
Bæjarstjórn veitir bæjarstjóra umboð til að undirrita og staðfesta gögn varðandi Almenningssamgöngur ohf. fyrir hönd Garðabæjar.

Bæjarráð Garðabæjar

04

13. (2161). fundur

Bæjarstjóri kynnti málið, með vísan til í uppfærðan samgöngusáttmála og kynningu á því máli og rekstri almenningssamgangna sem kynnt var í bæjarráði í febrúar sl. Í tillögunni felast ekki viðbótar fjárframlög miðað við þegar samþykkta fjárhagsáætlun Garðabæjar.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að veita bæjarstjóra umboð fyrir hönd Garðabæjar að undirrita og samþykkja stofnsamning, samþykktir og hluthafasamkomulag Almenningssamgangna ohf., félags um rekstur almenningssamgangna.

Hrannar Bragi Eyjólfsson vék af fundi eftir þennan fundarlið. Almar Guðmundsson tók sæti hans sem varamaður.

Bæjarráð Garðabæjar

05

46. (2147). fundur

Á fund bæjarráðs mættu Páll Björgvin Guðmundsson framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Ragnar Þórir Guðgeirsson, ráðgjafi hjá Expectus og kynntu stöðu fyrirkomulags almenningssamgangna ríkis og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Hildigunnur Hafsteinsdóttir, lögfræðingur Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Ásthildur Helgadóttir, sviðsstjóri umhverfissviðs Kópavogs, sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.