46. (2147). fundur
46. (2147). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
10.12.2024
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
- Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Dagskrá
Málsnúmer 2412068
01
Fyrirkomulag almenningssamgangna ríkis og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu - kynning
Á fund bæjarráðs mættu Páll Björgvin Guðmundsson framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Ragnar Þórir Guðgeirsson, ráðgjafi hjá Expectus og kynntu stöðu fyrirkomulags almenningssamgangna ríkis og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Hildigunnur Hafsteinsdóttir, lögfræðingur Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Ásthildur Helgadóttir, sviðsstjóri umhverfissviðs Kópavogs, sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Málsnúmer 2406311
02
Grásteinsmýri 2 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Grásteinsmýri ehf., kt. 510220-1960, leyfi til að byggja tvo fjölbýlishús á 3 hæðum með 42 íbúðum, hjólaskýli og djúpgámum að Grásteinsmýri 2.
Málsnúmer 2410225
03
Vetrarbraut 1 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Vetrarmýrinni ehf., kt. 550121-1580, leyfi fyrir byggingu 4 hæða og 5 hæða fjölbýlishúss með 135 íbúðum að Vetrarbraut 1.
Málsnúmer 2408257
04
Sala á byggingarrétt lóða í Garðabæ.
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs gerði grein fyrir framlögðu minnisblaði um sölu á byggingarréttum lóða í Garðabæ.
Málsnúmer 2412032
05
Drög að gjaldskrá akstursþjónustu fatlaðs fólks í Garðabæ árið 2025.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja gjaldskrá akstursþjónustu fatlaðs fólks.
Málsnúmer 2412033
06
Sameiginleg akstursþjónusta fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu - Sameiginlegar reglur.
Lagðar fram sameiginlegar reglur Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um sameiginlega akstursþjónustu fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu, sem undirritaðar voru 2. desember 2024.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja framangreindar reglur.
Málsnúmer 2412022
07
Þjónustusamningur SSH við Fjölsmiðjuna.
Lagður fram.
Málsnúmer 2412041
08
Framlag vegna barna með fjölþættan vanda og eða miklar þroska- og geðraskanir og eru vistuð utan heimilis á árinu 2024.
Í bréfinu kemur fram að áformað er að veita framlag úr ríkissjóði til að standa straum af hluta kostnaðar vegna barna með fjölþættan vanda og/eða miklar þroska- og geðraskanir sem vistuð eru utan heimilis árið 2024. Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjóra.
Málsnúmer 2412017
09
Garðbæingurinn okkar 2024
Bæjarráð samþykkir að óska eftir tilnefningum frá bæjarbúum um "Garðbæinginn okkar 2024" þar sem leitast verði við að verðlauna einstakling fyrir sitt framlag til Garðabæjar, þeim sem eru til fyrirmyndar á einhvern hátt og minna á að allir geta haft áhrif. Til greina koma Garðbæingar, en einnig fólk sem dvelur í bænum til lengri eða skemmri tíma og hefur jákvæð áhrif á nærumhverfi sitt.
Bæjarráð felur þróunar- og þjónustusviði afgreiðslu málsins og að skipa dómnefnd sem leggi mat á framkomnar tilnefningar.
Málsnúmer 2412060
10
Styrkbeiðni góðgerðarfélagsins Miðstöð slysavarna barna, mótt. 6. desember 2024.
Beiðni góðgerðarfélagsins Miðstöðvar slysavarna barna um styrk.
Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu við úthlutun styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2025.
Málsnúmer 2412063
11
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar Kvenfélags Álftaness um tímabundið áfengisleyfi vegna þorrablóts í íþróttamiðstöðinni Álftanesi þann 1. febrúar 2025.
Lögð fram umsókn Kvenfélags Álftaness um tækifærisleyfi vegna áfengisveitinga á þorrablóti í íþróttahúsi Álftaness 1. febrúar 2025.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
Málsnúmer 2412067
12
Bréf Styrktarsjóðs Garðasóknar varðandi ársreikning fyrir árið 2023 og framlag til sjóðsins fyrir árið 2024.
Lagt fram.
Málsnúmer 2405023
13
Bréf Kvenfélags Garðabæjar varðandi þakkir fyrir stuðning við kaffihlaðborð í Sveinatungu á 17. júní 2024.
Lagt fram.
Málsnúmer 2412062
14
Tölvupóstur Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi ungmennafulltrúa á sveitarstjórnarþing Evrópuráðsins.
Lagt fram erindi Sveitarstjórnarþings Evrópuráðsins þar sem kallað er eftir ungmennafulltrúum frá öllum 46 aðildarríkjunum sem vilja taka þátt í átaksverkefninu "Rejuvinating Politics.".
Bæjarráð vísar erindinu til fræðslu- og menningarsviðs og til umfjöllunar í ungmennaráði.