Beint í efni

Sala á byggingarrétt lóða í Garðabæ.

Málsnúmer 2408257

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

46. (2147). fundur

Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs gerði grein fyrir framlögðu minnisblaði um sölu á byggingarréttum lóða í Garðabæ.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

12. (945). fundur

"Bæjarstjórn samþykkir að fela sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að leita til tveggja fasteignasala um sölumeðferð byggingarrétta óseldra lóða. Lóðirnar skulu jafnframt auglýstar á vef Garðabæjar. Við ákvörðun lágmarksverðs skuli haft að leiðarljósi að söluverð nemi að lágmarki sömu lágmarksfjárhæð og í söluskilmálum og skulu lágmarksfjárhæðir framreiknaðar m.t.t. hækkunar á vísitölu. Þá skal við það miðað að slíkar lágmarksfjárhæðir skili sér nettó til sveitarfélagsins, a.t.t. til söluþóknunar fasteignasala. Gera skal bæjarráði reglulega grein fyrir framvindu málsins." Samþykkt með atkvæðum AG, BF, MG, GVG, GS, SS, HRG, KG og BDG. Atkvæði á móti greiddu ÞÞ og IA.

Bæjarráð Garðabæjar

03

30. (2131). fundur

Minnisblað vegna sölu byggingarrétta lóða í Garðabæ lagt fram.

Bæjarráð samþykkir að fela sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að leita til tveggja fasteignasala um sölumeðferð byggingarrétta óseldra lóða. Lóðirnar skulu jafnframt auglýstar á vef Garðabæjar. Við ákvörðun lágmarksverðs skuli haft að leiðarljósi að söluverð nemi að lágmarki sömu lágmarksfjárhæð og í söluskilmálum og skulu lágmarksfjárhæðir framreiknaðar m.t.t. hækkunar á vísitölu. Þá skal við það miðað að slíkar lágmarksfjárhæðir skili sér nettó til sveitarfélagsins, a.t.t. til söluþóknunar fasteignasala. Gera skal bæjarráði reglulega grein fyrir framvindu málsins.

Samþykkt með fjórum atkvæðum (BF, SHJ, HBE, GK). Ingvar Arnarson greiddi atkvæði á móti.