Tilnefning dómnefndar um Garðbæinginn okkar árið 2024.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
2. (2150). fundur
Bæjarráð tilnefnir Birnu Guðmundsdóttur, íþróttakennara, Hrafnhildi Sigurðardóttur, kennara við Sjálandsskóla og Ingimund Orra Jóhannsson, háskólanema í lífendafræði, í dómnefnd Garðbæingsins okkar.
Stefnt er að því að útnefning Garðbæingsins okkar árið 2024 verði 23. janúar 2025.
Bæjarráð Garðabæjar
02
1. (2149). fundur
Bæjarstjóri gerði grein fyrir ferlinu við val á Garðbæingi ársins. Alls bárust 111 tilnefningar frá bæjarbúum.
Bæjarráð Garðabæjar
03
46. (2147). fundur
Bæjarráð samþykkir að óska eftir tilnefningum frá bæjarbúum um "Garðbæinginn okkar 2024" þar sem leitast verði við að verðlauna einstakling fyrir sitt framlag til Garðabæjar, þeim sem eru til fyrirmyndar á einhvern hátt og minna á að allir geta haft áhrif. Til greina koma Garðbæingar, en einnig fólk sem dvelur í bænum til lengri eða skemmri tíma og hefur jákvæð áhrif á nærumhverfi sitt.
Bæjarráð felur þróunar- og þjónustusviði afgreiðslu málsins og að skipa dómnefnd sem leggi mat á framkomnar tilnefningar.