Beint í efni

2. (2150). fundur

14.01.2025
Bæjarráð Garðabæjar

2. (2150). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

14.01.2025

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - varaformaður
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður
  • Rakel Steinberg Sölvadóttir - varamaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
  • Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri

Ritari

  • Lúðvík Örn Steinarsson

Dagskrá

Málsnúmer 2404284

01

Útholt 2 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Kristófer Þorgeirssyni, kt. 210887-2539, leyfi til að byggja einbýlishús á 2 hæðum með innbyggðum bílskúr að Útholti 2.

Málsnúmer 2409605

02

Útholt 4 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Kristófer Þorgeirssyni, kt. 210887-2539, leyfi til að byggja einbýlishús á 2 hæðum með flötu þaki, einangrað og klætt að utan með áli og timburklæðningu að Útholti 4.

Málsnúmer 2407382

03

Vorbraut 15 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Vorbraut ehf., kt. 411123-1890, leyfi fyrir byggingu fjölbýlishúss með 14 íbúðum að Vorbraut 15.

Málsnúmer 2409525

04

Vorbraut 17 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Vorbraut ehf., kt. 411123-1890, leyfi til að byggja þriggja hæða fjölbýlishús með 8 íbúðum að Vorbraut 17.

Málsnúmer 2409410

05

Vorbraut 19 - Umsókn um byggingarleyfi - Vorbraut 19.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Landsar ehf, kt. 470920-1570, leyfi til að byggja 8 íbúða þrílyft fjölbýlishús að Vorbraut 19.

Málsnúmer 2501152

06

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar UMF Stjörnunnar um tímabundið áfengisleyfi á þorrablóti Stjörnunnar í Mýrinni.

Lögð fram umsókn Ungmennafélags Stjörnunnar um tækifærisleyfi vegna áfengisveitinga á þorrablóti í íþróttahúsinu Mýrinni 24. janúar 2025.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.

Málsnúmer 2501151

07

Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi Samgöngusáttmálann - sex mánaða skýrsla Betri samgangna ohf. dags. 8. janúar 2025.

Sex mánaða skýrsla Betri samgangna ohf., um stöðu og framgang verkefna, sbr. h-lið 6.gr. Samgöngusáttmálans lögð fram.

Málsnúmer 2501155

08

Umsókn KFUM og KFUK um styrk vegna leikjanámskeiða í Lindakirkju, dags. 8. janúar 2025.

Bæjarráð vísar erindinu til úthlutunar styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2025.

Málsnúmer 2411396

09

Áform um breytingu stjórnar Reykjanesfólkvangs.

Lagt fram minnisblað um Reykjanesfólksvang.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu Umhverfisnefndar Garðabæjar um að undirbúin verði úrsögn sveitarfélagsins úr Reykjanesfólksvangi.

Málsnúmer 2407142

10

Tillaga um viðmiðunarfjárhæðir samkvæmt reglum um lækkun eða niðurfellingu fasteignaskatts elli- og örorkulífeyrisþega.

Lögð fram eftirfarandi tillaga um viðmiðunarfjárhæðir samkvæmt reglum um lækkun eða niðurfellingu fasteignaskatts elli- og örorkulífeyrisþega.

„Einstaklingar með tekjur árið 2023 allt að kr. 6.970.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald. Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um kr. 6.100 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 7.580.000. (Ath. að fjármagnstekjur falla undir tekjur).

Hjón og samskattaðir aðilar (elli- og örorkulífeyrisþegar):

Hjón með tekjur árið 2023 allt að kr. 8.870.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald. Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um kr. 14.500 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 10.330.000. (Ath. að fjármagnstekjur falla undir tekjur).

Ekki þarf að sækja um lækkunina.“

Tillagan byggir á hækkun á ellilífeyris í janúar 2025 (4,3% hækkun).

Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagða tillögu.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að rýna fyrirkomulag reglnanna nánar.

Málsnúmer 2407142

11

Reglur um greiðslur vegna dvalar barna úr Garðabæ hjá dagforeldrum.

Bæjarráð samþykkir reglur um greiðslur vegna dvalar barna úr Garðabæ hjá dagforeldrum árið 2025.

Málsnúmer 2412017

12

Tilnefning dómnefndar um Garðbæinginn okkar árið 2024.

Bæjarráð tilnefnir Birnu Guðmundsdóttur, íþróttakennara, Hrafnhildi Sigurðardóttur, kennara við Sjálandsskóla og Ingimund Orra Jóhannsson, háskólanema í lífendafræði, í dómnefnd Garðbæingsins okkar.

Stefnt er að því að útnefning Garðbæingsins okkar árið 2024 verði 23. janúar 2025.