Beint í efni

Áform um breytingu stjórnar Reykjanesfólkvangs

Málsnúmer 2411396

Ferill máls

Umhverfisnefnd Garðabæjar

01

25 (22-26). fundur

sjá til upplýsinga minnisblað til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis sem Guðjón Bragason, lögfræðingur tók saman f.h Grindavíkurbæjar.

Staða Reykjanesfólkvangs rædd.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

02

24 (22-26). fundur

Fundargerð rædd og lögð fram.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

1. (953). fundur

Bæjarstjórn samþykkir að undirbúin verði úrsögn sveitarfélagsins úr Reykjanesfólksvangi.

Bæjarráð Garðabæjar

04

2. (2150). fundur

Lagt fram minnisblað um Reykjanesfólksvang.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu Umhverfisnefndar Garðabæjar um að undirbúin verði úrsögn sveitarfélagsins úr Reykjanesfólksvangi.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

05

23 (22-26). fundur

Farið var ítarlega yfir málefni Reykjanesfólkvangs og málið rætt í nefndinni. Umhverfisnefnd leggur til við bæjarráð að undirbúin verði úrsögn sveitarfélagsins úr Reykjanesfólkvangi.

Bæjarráð Garðabæjar

06

1. (2149). fundur

Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu málsins.

Bæjarráð Garðabæjar

07

44. (2145). fundur

Bréf frá Umhverfisstofnun dags. 21. nóvember 2024 varðandi tillögu að breytingu á auglýsingu um friðlýsingu Reykjanesfólksvangs.
Í bréfinu kemur fram að samkvæmt ákvæðum 2. og 3.mgr. 36.gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013 kynni Umhverfisstofnun áform um breytingar á friðlýsingu Reykjanesfólksvangs nr. 520/1975, er snýr að skipun stjórnar fólksvangsins þar sem Reykjavíkurborg, Vogar, Kópavogsbær, Reykjanesbær og Seltjarnarnesbær muni falla úr stjórn fólksvangsins.
Bæjarráð vísar erindinu til skoðunar og meðferðar hjá umhverfissviði og til umfjöllunar í umhverfisnefnd.