Beint í efni

24 (22-26). fundur

19.02.2025
Umhverfisnefnd Garðabæjar

24 (22-26). fundur

Umhverfisnefnd Garðabæjar

í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi

19.02.2025

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Stella Stefánsdóttir - formaður
  • Sófus Gústavsson - varamaður
  • Eiríkur Þorbjörnsson - aðalmaður
  • Eyþór Eðvarðsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Linda Björk Jóhannsdóttir - verkefnastjóri
  • Egill Daði Gíslason - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda

Ritari

  • Linda Björk Jóhannsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2409477

01

Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2024

Kynning á niðurstöðum könnunarinnar.

Hulda Hauksdóttir, deildarstjóri þjónustu og stafrænnar þróunar kynnti helstu niðurstöður þjónustukönnunar meðal íbúa Garðabæjar á árinu 2024 og svaraði fyrirspurnum fundarmanna.

Málsnúmer 2301082

02

Aðgerðaáætlun Garðabæjar í jafnréttismálum 2024-2026

Kynning á aðgerðaáætlun Garðabæjar í jafnréttismálum 2024-2026.

Kynning á aðgerðaáætlun Garðabæjar í jafnréttismálum 2024-2026. Snædís Björnsdóttir, lögfræðingur á velferðarsviði kynnti aðgerðaráætlunina og svaraði fyrirspurnum fundarmanna.

Málsnúmer 2202488

03

Deiliskipulag Vetrarmýrar og Smalaholts. Golfvöllur og útivistarskógur.

Arinbjörn Vilhjálmsson, skipulagsstjóri kynnti vinnslutillögu að deiliskipulagi íþrótta- og útivistarsvæðis í Smalaholti og Vetrarmýri, sem vísað hefur verið til forkynningar af skipulagsnefnd.

Íbúafundur vegna forkynningar á deiliskipulaginu var haldinn í Sveinatungu, 22. janúar sl. Tillagan er aðgengileg á vef skipulagsgáttar, www.skipulagsgatt.is (mál: 81/2025).

Hægt er að senda inn rafrænar ábendingar til og með 24. febrúar nk. í gegnum vef skipulagsgáttar, www.skipulagsgatt.is, eða á netfangið skipulag@gardabaer.is.


Málsnúmer 2411396

04

Áform um breytingu stjórnar Reykjanesfólkvangs

Fundargerð rædd og lögð fram.