Beint í efni

23 (22-26). fundur

08.01.2025
Umhverfisnefnd Garðabæjar

23 (22-26). fundur

Umhverfisnefnd Garðabæjar

í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi

08.01.2025

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Stella Stefánsdóttir - formaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
  • Eiríkur Þorbjörnsson - aðalmaður
  • Greta Ósk Óskarsdóttir - aðalmaður
  • Eyþór Eðvarðsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Linda Björk Jóhannsdóttir - verkefnastjóri
  • Egill Daði Gíslason - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda

Ritari

  • Linda Björk Jóhannsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2411396

01

Áform um breytingu stjórnar Reykjanesfólkvangs

Farið var ítarlega yfir málefni Reykjanesfólkvangs og málið rætt í nefndinni. Umhverfisnefnd leggur til við bæjarráð að undirbúin verði úrsögn sveitarfélagsins úr Reykjanesfólkvangi.

Málsnúmer 2312368

02

Erindisbréf starfshóps um staðarvalsgreiningu í stað endurvinnslustöðvarinnar við Dalveg

Umhverfisnefnd fagnar því að niðurstaða sé komin varðandi staðarval á endurvinnslustöð og leggur áherslu á að grenndaráhrif séu vel ígrunduð.

Málsnúmer 2501034

03

Gámar fyrir flugeldarusl

Dagana 1.-7.janúar var hægt að fara með flugeldarusl í þar til merkta gáma sem voru staðsettir á fjórum stöðum í bænum. Íbúar voru duglegir að nýta sér gámana

Málsnúmer 2412422

04

Stöðuskýrsla um innleiðingu Árósarsamningsins

Erindi lagt fram til upplýsinga.

Málsnúmer 2412382

05

Starfsskýrsla Skógræktarfélags Garðabæjar 2023-2024

Skýrslan lögð fram. Ánægja með öflugt starf skógræktarfélagsins.