Beint í efni

Erindisbréf starfshóps um staðarvalsgreiningu í stað endurvinnslustöðvarinnar við Dalveg

Málsnúmer 2312368

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

1. fundur

Lagt fram.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

02

23 (22-26). fundur

Umhverfisnefnd fagnar því að niðurstaða sé komin varðandi staðarval á endurvinnslustöð og leggur áherslu á að grenndaráhrif séu vel ígrunduð.

Bæjarráð Garðabæjar

03

47. (2148). fundur

Skil starfshóps um staðarval endurvinnslustöðvar í stað stöðvar við Dalveg kynnt. Björg Fenger, bæjarfulltrúi, sat í starfshópnum f.h. Garðabæjar.
Í samantekt starfshópsins kemur fram að á lokafundi nefndarinnar í nóvember 2024 hefði Kópavogsbær lagt til að lóð á svokölluðu Glaðheimasvæði verði skoðuð nánar fyrir endurvinnslustöð í stað stöðvar við Dalveg, sem verður lokað. Glaðheimasvæðið liggur á milli Bæjarlindar og Arnarnesvegar við sveitarfélagamörk Kópavogs og Garðabæjar. Lóðin er á óbyggðum suðurhluta svæðisins upp við Arnarnesveg. Miðað er við 4.000 til 4.500 m2 lóð sem er nokkru stærra en lóðin við Dalveg. Lauslega áætlað gæti opnun nýrrar stöðvar verið um 2 - 4 árum eftir að ákvörðun er tekin. Vinna þarf nánari tíma- og kostnaðaráætlun fyrir verkefnið.
Bæjarráð vísar málinu til skoðunar hjá Skipulagsnefnd og Umhverfisnefnd.

Bæjarráð Garðabæjar

04

1. (2102). fundur

Lagt fram erindisbréf fyrir starfshóp um staðarval fyrir endurvinnslustöð í stað endurvinnslustöðvar við Dalveg í Kópavogi.

Starfshópinn skipa, Hjördís Ýr Johnsen, bæjarfulltrúi í Kópavogi, Björg Fenger, bæjarfulltrúi í Garðabæ og Guðmundur Tryggvi Ólafsson, rekstrarstjóri endurvinnslustöðva Sorpu bs.

Fylgiskjöl