Beint í efni

1. (2102). fundur

09.01.2024
Bæjarráð Garðabæjar

1. (2102). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

09.01.2024

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
  • Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
  • Hlynur Elías Bæringsson - varamaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2312223

01

Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi tilnefningu á íslenskum ungmennafulltrúa á Sveitarstjórnarþingi Evrópuráðsins 2024, dags. 15.12.23.

Í bréfinu er auglýst eftir ungmennafulltrúa til þátttöku á sveitarstjórnarþingi Evrópuráðsins á árinu 2024.

Málsnúmer 2312272

02

Bréf Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins varðandi tillögur um staðsetningu og fjölgun slökkvistöðva á höfuðborgarsvæðinu, dags. 18.12.23.

Í bréfinu kemur fram að lögð hefur verið fram greinargerð starfshóps sem skipaður var af stjórn SHS til að þarfagreina og leggja til fjölda og staðsetningar slökkvistöðva á höfuðborgarsvæðinu. Í greinargerðinni koma fram tillögur varðandi málið ásamt tillögu að framkvæmdaáætlun

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja fyrir sitt leyti að unnið verði að framgangi framkvæmdaáætlunar í samræmi við tillögur hópsins.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2312273

03

Erindi Hestamannafélagsins Spretts varðandi styrk vegna íþróttamóts í maí 2024, dags. 18.12.23.

Bæjarráð vísar erindinu til umfjöllunar og afgreiðslu íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2312368

04

Tilkynning frá Sorpu bs. varðandi erindisbréf starfshóps um staðarvalsgreiningu í stað endurvinnslustöðvarinnar við Dalveg, dags. 22.12.23.

Lagt fram erindisbréf fyrir starfshóp um staðarval fyrir endurvinnslustöð í stað endurvinnslustöðvar við Dalveg í Kópavogi.

Starfshópinn skipa, Hjördís Ýr Johnsen, bæjarfulltrúi í Kópavogi, Björg Fenger, bæjarfulltrúi í Garðabæ og Guðmundur Tryggvi Ólafsson, rekstrarstjóri endurvinnslustöðva Sorpu bs.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2209604

05

Tilkynning frá innviðaráðuneytinu um endanleg framlög úr jöfnunarsjóði 2023.

Í tilkynningunni kemur fram að innviðaráðherra hefur samþykkt tillögur ráðgjafanefndar jöfnunarsjóðs um endanleg framlög úr sjóðnum árið 2023.

Viðbótarframlag til Garðbæjar vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2023 nemur um 23,0 mkr..

Málsnúmer 2401009

06

Tilkynning frá innviðaráðuneytinu varðandi hækkun viðmiðunarfjárhæða tekju- og eignamarka vegna félagslegra leiguíbúða, dags. 28.12.23.

Í tilkynningunni kemur fram að innviðaráðherra hefur gefið út uppfærðar viðmiðunarfjárhæðir tekju- og eignamarka vegna félagslegra leiguíbúða fyrir árið 2024.

Málsnúmer 2310598

07

Tilkynning frá innviðaráðuneytinu um hækkun á framlögum vegna þjónustu við fatlað fólk áætluð tæplega 31 milljarður árið 2024, dags. 05.01.24.

Í tilkynningunni kemur fram að innviðaráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafanefndar jöfnunarsjóðs um að hækka áætluð framlög sjóðsins vegna málaflokks fatlaðs fólks á árinu 2024 um 5,8 milljarða króna

Hækkun á áætluðu framlagi til Garðabæjar nemur 283.577 þkr.

Málsnúmer 2307150

08

Tillaga um viðmiðunarfjárhæðir samkvæmt reglum um lækkun eða niðurfellingu fasteignaskatts elli- og örorkulífeyrisþega.

Lögð fram eftirfarandi tillaga um viðmiðunarfjárhæðir samkvæmt reglum um lækkun eða niðurfellingu fasteignaskatts elli- og örorkulífeyrisþega.

"Einstaklingar með tekjur árið 2022 allt að kr. 6.680.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald. Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um kr. 5.800 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 7.260.000. (Ath. að fjármagnstekjur falla undir tekjur).

Hjón og samskattaðir aðilar (elli- og örorkulífeyrisþegar):

Hjón með tekjur árið 2022 allt að kr. 8.500.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald. Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um kr. 14.000 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 9.900.000. (Ath. að fjármagnstekjur falla undir tekjur)".

Ekki þarf að sækja um lækkunina.

Tillagan byggir á hækkun á ellilífeyris í janúar 2024.

Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagða tillögu.

Málsnúmer 2401071

09

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar Lionsklúbbs Álftaness um áfengisleyfi á þorrablóti.

Í umsókninni er farið fram á tímabundið áfengisleyfi á þorrablóti sem halda á í Íþróttamiðstöð Álftaness laugardaginn 3. febrúar 2024.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.

Málsnúmer 2401065

10

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar UMF Stjörnunnar um áfengisleyfi á þorrablóti

Í umsókninni er farið fram á tímabundið áfengisleyfi á þorrablóti sem halda á í íþróttahúsinu Mýrinni föstudaginn 26. janúar 2024.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.

Málsnúmer 2401038

11

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á lögum um greiðsluaðlögun einstaklinga, nr. 101/2020, 27. mál., dags. 03.01.24.

Lagt fram.

Málsnúmer 2401034

12

Bréf Krabbameinsfélags höfuðborgarsvæðisins varðandi framlag til starfseminnar árið 2024, dags. 29.12.23.

Bæjarráð vísar bréfinu til úthlutunar styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2024.

Málsnúmer 2307150

14

Gjaldskrá stuðningsþjónustu 2024.

Bæjarráð vísar gjaldskránni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Málsnúmer 2401089

15

Betri Garðabær - hugmyndasöfnun og íbúakosning 2024.

Lögð fram verkefnalýsingu og gerð grein fyrir undirbúningi að hugmyndasöfnum verkefnisins Betri Garðabær sem mun fara fram desember og janúar. Íbúakosning er fyrirhuguð í maí. Gert er ráð fyrir fjárveitingu að fjárhæð 100 mkr. til verkefna sem koma til framkvæmda á árunum 2024 og 2025.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2401076

16

Innritun í leikskóla 2024

Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir minnisblaði um stöðu innritunar í leikskólum Garðabæjar, dags. 5. janúar 2024.

Fram kom að um áramót eru á virkum biðlista 160 börn, fædd 2022 eða eldri. Þar af eru 20 með leikskólapláss í öðrum sveitarfélögum og 11 hjá dagforeldum. Stærsti aldurshópur barna á biðlista eru börn fædd á seinni hluta ársins 2022 eða 119 börn.

Bæjarráð vísar minnisblaðinu til umfjöllunar leikskólanefndar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2205212

17

Drög að samningi við Skóla ehf. um rekstur leikskóla í Urriðaholti.

Bæjarráð vísar samningnum til afgreiðslu bæjarstjórnar.