Innritun í leikskóla 2024
Ferill máls
Leikskólanefnd Garðabæjar
01
22. fundur
Kynnt var góð staða í innritun leikskóla fyrir haustið 2024.
Farið var yfir stöðu innritunar í leikskóla fyrir skólaárið 2024 til 2025. Staðan er mun betri en fyrir ári síðan.
Leikskólanefnd Garðabæjar
02
15. fundur
Innritun í leikskóla 2024
Guðbjörg Linda Udengard sviðsstjóri kynnti minnisblað um innritunarmál leikskóla sem lagt var fram fyrir bæjarstjórn.
Bæjarráð Garðabæjar
03
1. (2102). fundur
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir minnisblaði um stöðu innritunar í leikskólum Garðabæjar, dags. 5. janúar 2024.
Fram kom að um áramót eru á virkum biðlista 160 börn, fædd 2022 eða eldri. Þar af eru 20 með leikskólapláss í öðrum sveitarfélögum og 11 hjá dagforeldum. Stærsti aldurshópur barna á biðlista eru börn fædd á seinni hluta ársins 2022 eða 119 börn.
Bæjarráð vísar minnisblaðinu til umfjöllunar leikskólanefndar.