Betri Garðabær 2024 - hugmyndasöfnun og íbúakosning.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
12. (2113). fundur
Á fund bæjarráðs kom Hrönn Hafliðadóttir, skipulagsfræðingur á umhverfissviði og gerði grein fyrir niðurstöðum matshóps varðandi verkefni sem lagt er til að fari í rafræna íbúakosningu undir heitinu „Betri Garðabær“. Alls bárust 189 hugmyndir í hugmyndasamkeppni og skráðu 1169 einstaklingar sig inn á hugmyndavefinn. Skráðar voru 293 athugasemdir um innsendar hugmyndir. Matshópurinn leggur til að 20 hugmyndir fari í kosningu.
Bæjarráð samþykkir tillögur matshópsins.
Rafræn íbúakosning mun fara fram dagana 8. maí til 20. maí nk. Íbúar með skráð lögheimili í Garðabæ sem verða 15 ára á kosningaárinu og eldri geta tekið þá í kosningunni.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
02
16 (22-26). fundur
Betri Garðabær 2023-2025 er samráðsverkefni íbúa og stjórnsýslu um forgangsröðun og úthlutun fjármagns til smærri framkvæmda í nærumhverfi íbúa í Garðabæ. Verkefnið var sett fyrst á laggirnar árið 2019 og er þetta í þriðja sinn sem verkefnið fer fram. í ár bárust 186 hugmyndir og stefnt er á að hámark 30 hugmyndir verði settar í rafræna kosningu þar sem íbúar í Garðabæ fá að kjósa um hugmyndirnar.
Bæjarráð Garðabæjar
03
7. (2108). fundur
Samskiptastjóri gerði grein fyrir hugmyndasöfnun í verkefninu Betri Garðabær. Alls bárust 189 hugmyndir. Unnið verður úr hugmyndum og í lok mars verður lögð fram tillaga um 30 hugmyndir sem fara í rafræna kosningu dagana 8. - 20. maí 2024.
Bæjarráð Garðabæjar
04
1. (2102). fundur
Lögð fram verkefnalýsingu og gerð grein fyrir undirbúningi að hugmyndasöfnum verkefnisins Betri Garðabær sem mun fara fram desember og janúar. Íbúakosning er fyrirhuguð í maí. Gert er ráð fyrir fjárveitingu að fjárhæð 100 mkr. til verkefna sem koma til framkvæmda á árunum 2024 og 2025.