12. (2113). fundur
12. (2113). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
26.03.2024
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
- Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - varamaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Lúðvík Örn Steinarsson, nýráðinn sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, sat fund bæjarráðs sem gestur.
Dagskrá
Málsnúmer 2403343
01
Bréf umboðsmanns barna varðandi hljóðvist í skólum, dags. 18.03.24.
Í bréfinu er vakin athygli á málþingi sem nýverið var haldið í tilefni af alþjóðlegum degi heyrnar þar sem sjónum var beint að hljóðvist í umhverfi barna og sérstaklega rætt um hljóðvist í skólum. Í bréfinu er áskorun til sveitarfélaga um að grípa til ráðstafana til að bæta hljóðvist skólum.
Bæjarráð tekur undir sjónarmið um mikilvægi þess að leita leiða til að bæta hljóðvist í skólum og vísar bréfinu til umhverfissviðs.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2403344
02
Bréf Fjarskiptastofu varðandi könnun á áformum um uppbyggingu ljósleiðara-aðgangsneta, dags. 19.03.24.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu umhverfissviðs.
Málsnúmer 2403416
03
Bréf Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands varðandi umsóknir í styrktarsjóð EBÍ, dags. 21.03.24.
Málsnúmer 2403417
04
Tilkynning frá starfshópi á vegum umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytis varðandi endurskoðun laga um verndar og orkunýtingaráætlun, dags. 20.03.24.
Lögð fram.
Málsnúmer 2401089
05
Betri Garðabær 2024 - hugmyndasöfnun og íbúakosning.
Á fund bæjarráðs kom Hrönn Hafliðadóttir, skipulagsfræðingur á umhverfissviði og gerði grein fyrir niðurstöðum matshóps varðandi verkefni sem lagt er til að fari í rafræna íbúakosningu undir heitinu „Betri Garðabær“. Alls bárust 189 hugmyndir í hugmyndasamkeppni og skráðu 1169 einstaklingar sig inn á hugmyndavefinn. Skráðar voru 293 athugasemdir um innsendar hugmyndir. Matshópurinn leggur til að 20 hugmyndir fari í kosningu.
Bæjarráð samþykkir tillögur matshópsins.
Rafræn íbúakosning mun fara fram dagana 8. maí til 20. maí nk. Íbúar með skráð lögheimili í Garðabæ sem verða 15 ára á kosningaárinu og eldri geta tekið þá í kosningunni.