Beint í efni

1. (2149). fundur

07.01.2025
Bæjarráð Garðabæjar

1. (2149). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

07.01.2025

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - varaformaður
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður
  • Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
  • Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri

Ritari

  • Lúðvík Örn Steinarsson

Dagskrá

Málsnúmer 2411496

01

Beiðni Oddfellowreglunnar á Íslandi um niðurfellingu gatnagerðargjalda.

Bæjarráð telur ekki unnt að verða við framkominni beiðni, þar sem hún rúmast ekki innan sérstakrar lækkunarheimildar gatnagerðargjalda skv. 9.gr. Samþykkta nr. 862/2007 um gatnagerðargjald í Garðabæ.

Málsnúmer 2410179

02

Tilkynning frá innviðaráðuneytinu um endanleg framlög úr jöfnunarsjóði fyrir árið 2024 vegna útgjalda- og tekjujöfnunarframlaga, dags. 30. desember 2024.

Endanleg framlög úr Jöfnunarsjóð fyrir árið 2024 vegna útgjalda- og tekjujöfnunarframlaga lögð fram.

Málsnúmer 2412296

03

Erindi frá innviðaráðuneytinu varðandi kortlagningu á verkefnum á sviði umhverfismála hjá sveitarfélögum, dags. 16. desember 2024.

Lagt fram erindi innviðaráðuneytisins sem í samstarfi við umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið vinnur að kortlagningu á verkefnum á sviði umhverfismála hjá sveitarfélögum. Um er að ræða aðgerð í gildandi stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga en markmið aðgerðarinnar er að skapa grundvöll fyrir markvissari árangri, samtali og samstarfi ríkis og sveitarfélaga á sviði umhverfismála.

Bæjarráð vísar erindinu til umhverfissviðs.

Málsnúmer 2501032

04

Haukshús - leiga húsnæðis.

Bæjarráð samþykkir að auglýsa Haukshús (gamla golfskálann á Álftanesi) til leigu. Skal miðað að því að leigusamningur verði gerður til eins árs í senn.

Bæjarráð felur fjármála- og stjórnsýslusviði afgreiðslu málsins.

Málsnúmer 2412017

05

Garðbæingurinn okkar árið 2024.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir ferlinu við val á Garðbæingi ársins. Alls bárust 111 tilnefningar frá bæjarbúum.

Málsnúmer 2411396

06

Áform um breytingu stjórnar Reykjanesfólkvangs.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu málsins.

Málsnúmer 2407142

07

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2025 (2025-2028) - Drög að gjaldskrá stuðningsþjónustu fyrir árið 2025.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja gjaldskrá stuðningsþjónustu fyrir árið 2025.