Vorbraut 15 - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
23. (2171). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Vorbraut ehf., kt. 411123-1890, leyfi fyrir stækkun og breytingu á kjallara að Vorbraut 15.
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
03
6. fundur
Lagðir fram uppfærðir uppdrættir fyrir Vorbraut 5 og 15 að nýju vegna aðstæðna í landi.
Uppdrættir gera nú ráð fyrir því að hæð gólfs aðkomuhæðar er hærri en uppgefinn gólfkóti skv. hæðablaði (82.10) og verður 83.00, svo koma megi fyrir rampa með ásættanlegum halla niður í bílakjallara. Hámarkshæð húss breytist ekki og verður í samræmi við ákvæði deiliskipulags.
Uppdrættir gera nú einnig ráð fyrir því að byggingarhluti niðurgrafinns bílakjallara að sunnanverðu nái 80 cm út fyrir byggingarreit, til að styrkja burðarþol byggingarinnar.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3. mgr. sömu greinar hvað bæði ofangreind atriði varðar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
Bæjarráð Garðabæjar
04
2. (2150). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Vorbraut ehf., kt. 411123-1890, leyfi fyrir byggingu fjölbýlishúss með 14 íbúðum að Vorbraut 15.