Beint í efni

28. (2176). fundur

12.08.2025
Bæjarráð Garðabæjar

28. (2176). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

12.08.2025

Kl. 08:00 - 8:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
  • Margrét Bjarnadóttir - varamaður
  • Gunnar Valur Gíslason - varamaður
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
  • Guðlaugur Kristmundsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
  • Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri

Ritari

  • Lúðvík Örn Steinarsson

Dagskrá

Málsnúmer 2507083

01

Víkurgata 15 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Tannlæknastofu EG ehf., kt. 630399-2809, leyfi til að reisa tæknirými neðanjarðar ásamt stoðveggjum og útitröppum að Víkurgötu 15.

Málsnúmer 2505165

02

Úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála varðandi stjórnsýslukæru nr. 72/2025 - Hnoðraholt norður, dags. 7. ágúst 2025.

Lagður fram úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála varðandi kæru á ákvörðun bæjarstjórnar Garðabæjar frá 6. febrúar 2025 um að samþykkja breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður. Jafnframt voru kærðar ákvarðanir byggingarfulltrúa frá 8. apríl 2025 um að samþykkja byggingaráform vegna Vorbrautar 8-12 og 14 og útgáfu byggingarleyfis frá 29. apríl 2025 fyrir Vorbraut 8-12.

Í niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar kemur fram að málsmeðferð deiliskipulagsbreytinga hafi verið í samræmi við lög og kröfu um ógildingu þar með hafnað. Jafnframt kemur fram í úrskurðinum að ákvarðanir um byggingaráform- og leyfi eigi sér stoð í deiliskipulagi og kröfum þar að lútandi jafnframt hafnað.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2506130

03

Tillaga umhverfisnefndar varðandi viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi 2025.

Bæjarráð samþykkir tillögu umhverfisnefndar um viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi árið 2025. Fyrirhugað er að veita aðilum viðurkenningar við athöfn á Garðatorgi miðvikudaginn 27. ágúst nk. kl. 17:00.

Málsnúmer 2508043

04

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tímabundið áfengisleyfi vegna lokahófs landsmóts Oddfellow í Miðgarði.

Lögð fram beiðni Katrínar Óskar Aldan Gunnarsdóttur um tækifærisleyfi vegna áfengisveitinga fyrir lokahóf landsmóts Oddfellowa í golfi 9. ágúst 2025. Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi hafi verði veitt.

Málsnúmer 2412068

05

Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi breytingar á stofnskjölum Almenningssamgangna ohf., dags. 8. ágúst 2025.

Lagt fram erindi Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, dags. 8. ágúst 2025 varðandi stofnun félags til reksturs almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu.

Þann 1. apríl 2025 samþykkti bæjarstjórn Garðabæjar stofnskjöl félagsins. Frá framangreindu tímamarki hefur verið unnið að stofnun félags í eigu ríkis og sveitarfélaga sem annast mun þróun, rekstur og skipulag almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Við þá vinnu hefur m.a. verið leitað lögfræðiálita. Í ljósi fyrirliggjandi gagna telur stýrihópur um verkefnið nauðsynlegt að gera smávægilegar breytingar á stofnskjölum félagsins.

Bæjarráð samþykkir þær breytingar sem fram koma í erindi SSH og veitir bæjarstjóra umboð fyrir hönd Garðabæjar að undirrita og samþykkja stofnsamning, samþykktir og hluthafasamkomulag Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins ohf., félags um rekstur almenningssamgangna.