Beint í efni

Úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála varðandi stjórnsýslukæru nr. 72/2025 - Hnoðraholt norður, dags. 7. ágúst 2025.

Málsnúmer 2505165

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

28. (2176). fundur

Lagður fram úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála varðandi kæru á ákvörðun bæjarstjórnar Garðabæjar frá 6. febrúar 2025 um að samþykkja breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður. Jafnframt voru kærðar ákvarðanir byggingarfulltrúa frá 8. apríl 2025 um að samþykkja byggingaráform vegna Vorbrautar 8-12 og 14 og útgáfu byggingarleyfis frá 29. apríl 2025 fyrir Vorbraut 8-12.

Í niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar kemur fram að málsmeðferð deiliskipulagsbreytinga hafi verið í samræmi við lög og kröfu um ógildingu þar með hafnað. Jafnframt kemur fram í úrskurðinum að ákvarðanir um byggingaráform- og leyfi eigi sér stoð í deiliskipulagi og kröfum þar að lútandi jafnframt hafnað.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

02

18. (2166). fundur

Lögð fram kæra lóðarhafa Skerpluholts 7, Skerpluholts 5, Skerpluholts 1 og Skerpluholts 3 til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna breytinga á deiliskipulagi, samþykkt byggingaráforma og útgáfu byggingarleyfis og kröfu um stöðvun framkvæmda vegna Vorbrautar 8-12 og 14.

Bæjarráð felur Hjalta Steinþórssyni lögmanni að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.