Tillaga umhverfisnefndar varðandi viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi 2025.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
28. (2176). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu umhverfisnefndar um viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi árið 2025. Fyrirhugað er að veita aðilum viðurkenningar við athöfn á Garðatorgi miðvikudaginn 27. ágúst nk. kl. 17:00.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
02
27 (22-26). fundur
Umhverfisnefnd fór í árlega garðaskoðun og mun leggja fram tillögur til samþykktar hjá bæjarráði um að veita viðurkenningar fyrir snyrtilegar lóðir íbúðarhúsnæðis, snyrtilegar lóðir fyrirtækis, snyrtilega götu, skemmtilegt opið svæði og framlag til umhverfismála.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
03
26 (22-26). fundur
Umhverfisnefnd leggur til að óskað verði eftir ábendingum íbúa vegna snyrtilegra garða, snyrtilegra fyrirtækjalóða, snyrtilegra gatna, skemmtilegra opinna svæða ásamt ábendingum fyrir framlag til umhverfismála.