Beint í efni

26 (22-26). fundur

18.06.2025
Umhverfisnefnd Garðabæjar

26 (22-26). fundur

Umhverfisnefnd Garðabæjar

í Sveinatungu, Garðatorgi

18.06.2025

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Stella Stefánsdóttir - formaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
  • Eiríkur Þorbjörnsson - aðalmaður
  • Greta Ósk Óskarsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Linda Björk Jóhannsdóttir - verkefnastjóri
  • Egill Daði Gíslason - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda

Ritari

  • Linda Björk Jóhannsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2502419

01

Mengunarmælingar 2025

Lagt fram. Umhverfissvið er með í vinnslu nýja verklagsreglu varðandi tengingar fráveitu við nýbyggingar.

Málsnúmer 2506130

02

Snyrtilegt umhverfi 2025

Umhverfisnefnd leggur til að óskað verði eftir ábendingum íbúa vegna snyrtilegra garða, snyrtilegra fyrirtækjalóða, snyrtilegra gatna, skemmtilegra opinna svæða ásamt ábendingum fyrir framlag til umhverfismála.

Málsnúmer 2504029

03

Hreinsunarátak 2025

Árlegt hreinsunarátak var haldið dagana 28. apríl - 12. maí. Þrjátíu og átta hópar fengu úthlutuð svæði til að hreinsa í nærumhverfi sínu. Umhverfisnefnd vill koma fram þökkum til allra þeirra sem tóku þátt.

Málsnúmer 2504082

04

Vorhreinsun lóða 2025

Vorhreinsun lóða í Garðabæ fór fram dagana 9.-22 maí með sama sniði og í fyrra þegar nýrri nálgun á hreinsun garðaúrgangs var kynnt. Ríflega 30 gámum var komið fyrir í bænum til að taka á móti garðaúrgangi sem íbúar komu sjálfir í gámana. Fjöldi gáma endurspeglar þann mikla dugnað sem Garðbæingar hafa sýnt í vorhreinsun sinni.

Málsnúmer 2505166

05

Evrópsk samgönguvika

Evrópsk Samgönguvika er haldin dagana 16.- 22. september ár hvert og hafa borgir, bæir, fyrirtæki og félagasamtök á Íslandi tekið þátt í þessu skemmtilega átaki frá árinu 2002. Markmið vikunnar er að kynna fyrir íbúum í þéttbýli fjölbreytta samgöngumáta sem eru vistvænir, hagkvæmir og bæta heilsu fólks um leið og þeir hafa jákvæð áhrif á umhverfið. Þema samgönguviku árið 2025 er Samgöngur fyrir öll þar sem m.a. er horft til aðgengismála

ólíkra hópa og innan sveitarfélaga.

Málsnúmer 2505409

06

Tillaga að endurskoðun og stækkun friðlands Gróttu

Lagt fram.