Evrópsk samgönguvika 2025
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
01
28 (22-26). fundur
Evrópsk samgönguvika stendur yfir dagana 16.-22. september. Samgönguvika er evrópskt átak um bættar samgöngur í borgum og bæjum. Markmið vikunnar er að hvetja fólk til umhugsunar um eigin ferðavenjur og virkja það til að nota almenningssamgöngur, hjóla eða ganga. Þema samgönguviku í ár er Samgöngur fyrir öll.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
02
26 (22-26). fundur
Evrópsk Samgönguvika er haldin dagana 16.- 22. september ár hvert og hafa borgir, bæir, fyrirtæki og félagasamtök á Íslandi tekið þátt í þessu skemmtilega átaki frá árinu 2002. Markmið vikunnar er að kynna fyrir íbúum í þéttbýli fjölbreytta samgöngumáta sem eru vistvænir, hagkvæmir og bæta heilsu fólks um leið og þeir hafa jákvæð áhrif á umhverfið. Þema samgönguviku árið 2025 er Samgöngur fyrir öll þar sem m.a. er horft til aðgengismála
ólíkra hópa og innan sveitarfélaga.
Bæjarráð Garðabæjar
03
18. (2166). fundur
Lagt fram erindi Umhverfis- orku og loftlagsráðuneytisins vegna evrópskrar samgönguviku sem haldin verður dagana 16.-22. september 2025.